Um helgina fór fram lokamót í 7. flokki drengja í TM höllinni en Keflvísku drengirnir höfðu titil að verja frá því í minniboltanum í fyrra. Keflavík komu taplausir inn í lokamótið núna og því ljóst að önnur lið myndu gera harða atlögu að þeim. Öll þau fimm lið sem mættu hafa tekið miklum framförum í vetur.
Um helgina fór fram lokamót í 7. flokki drengja í TM höllinni en Keflvísku drengirnir höfðu titil að verja frá því í minniboltanum í fyrra. Keflavík komu taplausir inn í lokamótið núna og því ljóst að önnur lið myndu gera harða atlögu að þeim. Öll þau fimm lið sem mættu hafa tekið miklum framförum í vetur.
Nýliðar Hamars/Hrunamanna mætti í fyrsta skiptið í A-riðil. Ljóst var að verkefni þeirra yrði erfitt en þeir sýndu mikið baráttuþrek. Eftir erfiðan fyrsta leik á móti Keflavíkurhraðlestinni veittu þeir öðrum liðum verðuga keppni. Þrátt fyrir tap í öllum leikjum eru þeir reynslunni ríkari og eiga án efa eftir að sjást aftur í A-riðli.
Lið Ármanns er vel skipað og er stýrt af ekki minni kempum en Karli Guðlaugssyni og Birgi Mikaelssyni. Þrátt fyrir að hafa misst sterkan leikmann í vetur yfir til KR-inga þá hafa þeir tekið stöðugum framförum.. Í þetta skiptið lutu þeir þó í lægra haldi fyrir KR-ingum í úrslitaleik um 3ja sætið. Unnu 1 leik en töpuðu 3. Fjórða sætið var því þeirra í ár.
KR liðið hefur á að skipa breiðum hópi sterkra stráka undir stjórn Bojans Desnica. Duglegir og orkumiklir drengir en sterk og aggresív vörn hefur verið þeirra aðalsmerki. Þeir veittu bæði Keflvíkingum og sérstaklega Valsmönnum harða keppni en náðu þó ekki að yfirstíga þær hindranir í þetta skiptið. Eftir tvo sigra og tvö töp enduðu þeir í 3ja sætinu.
Lið Valsmanna hefur bæði í fyrra og í ár verið skrefinu á undan öðrum liðum, nema þó Keflavík. Öflugur árgangur þar á ferð hjá Valsmönnum enda mikið af góðum körfuboltagenum þar á ferð. Þeir komu því inn í úrslitaleikinn án taps í lokamótinu. Strax frá fyrstu mínútu úrslitaleiksins var ljóst að þeir ætluðu að leggja allt í sölurnar.
Úrslitaleikurinn milli Vals og Keflavíkur hófst með látum og barist var um hvern bolta frá fyrstu mínútu. Keflavík náði þó strax forystu sem þeir létu aldrei eftir. Staðan í hálfleik var 17-11. Hægt og rólega herti Keflavík tökin með gríðarsterkum varnarleik og skipulögðum sóknarleik. Valsmenn keyrðu á nánast sama liði allan leikinn og hægt og rólega fóru lykilmenn þeirra að þreytast. Keflavík notaði alla sína leikmenn og skiptu óþreyttum leikmönnum ört inná og uppskáru að lokum sannfærandi sigur 48-25.
Keflavíkurliðið sýndi að þeir eru svo sannarlega verðugir sigurvegarar enda fóru þeir taplausir í gegnum veturinn, eins og síðastliðinn vetur. Agaður varnarleikur, flott hraðaupphlaup og skipulagður sóknarleikur einkenndi leikstíl Keflavíkur um helgina. Björn Einarsson þjálfari liðsins hefur tekist vel til að ná því besta út úr hópnum og stilla saman öflugu liði ólíkra körfuboltadrengja. Til hamingju Keflavík.
Frábæru móti lokið í Keflavík og framtíð íslensks körfubolta svo sannarlega björt.
Myndasafn úr lokaleik Keflavíkur og Vals




