Stjarnan úr Garðabæ leiðir Njarðvík með 3 stigum í oddaleik liðanna um sæti í úrvalsdeild komandi tímabil. Mikil barátta hefur verið í leiknum og hvað eftir annað (9) hafa liðin skipst á forystunni. Atkvæðamest fyrir heimamenn er Björk Gunnarsdóttir með 5 stig, 2 stoðsendingar og 4 fráköst, á meðan fyrir gestina er það Bára Fanney Hálfdánardóttir sem dregur vagninn með 6 stig og 4 fráköst.




