Nú eru réttar 45 mínútur í 4. leik Njarðvíkur og KR í undanúrslitaeinvígi þeirra. Mikið hefur verið spáð og spekúlerað hvort hinn kyngmagnaði Pavel Ermolisnkij verði með í kvöld og, af hvaða mætti hann mun beita sér. Rétt í þessu var tekið eftir því á samskiptamiðlinum Twitter, af Ívari Ottósyni (@ivarsolocean), að umræddur Pavel, hafi verið fyrstur mættur til upphitunar. Hvort það gefur til kynna að hann ætli sér stóra hluti í leik kvöldsins eða ekki skulum við láta liggja á milli hluta, en æri ánægjulegt hlýtur það þó að vera að leikmaðurinn sé slíkt spenntur/tilbúinn fyrir átök kvöldsins.
Hægt er að skorða færslu Ívars hér.




