Tindastóll sigraði KR í öðrum leik úrslitanna fyrr í kvöld á heimavelli sínum Síkinu með 80 stigum gegn 72. Jafnaði þá því í leikjum með einn sigur gegn einum í seríunni. Næsti leikur liðanna er á heimavelli KR í Vesturbænum (DHL Höllin) komandi sunnudag (26.04) kl. 1915.
Fyrir leikinn höfðu verið upp miklar vangaveltur um það hvort leikmenn Tindastóls, þeir Myron Dempsey og Darrell Flake, yrðu með í leiknum, en sá fyrrnefndi er að jafna sig eftir heilahristing sem hann fékk á síðustu æfingu liðsins fyrir fyrsta leik liðanna, sá seinni á ökklameiðslum sem virðast vera að taka sig upp aftur (eftir að hann hafði fyrr í vetur ökklabrotnað).
Leikurinn byrjaði í blússandi sveiflu þar sem að leikstjórnandi KR, Pavel Ermolonskij, opnaði fyrstur reikninginn með löngum þrist. KR að miklu leyti átti þennan fyrsta sprett leiksins, voru komnir með snöggt 9-17 forskot þegar rétt um 4 mínútur lifðu eftir. Stólarnir (sem fengu mikið meira en íþróttalið fá venjulega frá sínum áhorfendum) náðu að skera það forskot niður á innan við mínútu og náðu með þrist frá Ingva að jafna leikinn með 3:12mín. eftir af fyrsta leikhluta.
Áberandi var í byrjun leiks hvað leikmaður KR, Darri Hilmarsson, og leikmaður Tindastóls, Darrell Lewis mættu afgerandi betur stemmdir til leiks en liðsfélagar þeirra. Á báðum endum vallarins voru þeir svarið fyrir sín lið (að er virtist) þessar fyrstu mínútur. Fyrsti leikhlutinn endaði með stigs forskoti heimamanna, 25-24.
Í öðrum leikhlutanum héldu heimamenn áfram, með kraft hússins með sér, að sigrast á fyrsta leik liðanna. Að manni fannst skrefinu á undan og alveg örugglega með alla stemminguna með sér. Diselvél KR liðsins mallaði þó fast í bakið á þeim og fór svo að þegar að leikmenn héldu til búningsherbergja í hálfleik, var leikurinn aftur kominn í pattstöðu, 40-40.
Fyrir heimamenn var það leikstjórnandinn ungi, Pétur Rúnar Birgisson, sem skilaði hæsta framlaginu með 7 stigum (3/4 af vellinum), 4 fráköstum og 5 stoðsendingum og svo kempan, Darrell Lewis, með 13 stig, 7 fráköst og 4 stoðsendingar. Fyrir gestina var það áðurnefndur Darri Hilmarsson sem dró vagninn, með 9 stigum, 3 fráköstum og 2 stoðsendingum.
Eftir hlé, í þriðja leikhluta leiksins hélt gangur annars leikhlutans svo að miklu leyti áfram. Liðin skiptust á snöggum höggum þar sem Stólarnir voru þó, aðeins, bara aðeins, skrefinu á undan. Snemma í leikhlutanum fékk leikstjórnandi KR, Pavel Ermolinskij, snögglega sína aðra og svo þriðju villu. Var hann því hvíldur til þess að koma í veg fyrir að hann yrði útilokaður frá leiknum í fjórða og ekki verri leikmaður en Björn Kristjánsson settur inná fyrir hann til þess að stýra skútunni.
Um miðbik hlutans náði Tindastóll að slíta sig frá gestunum úr Vesturbænum að eilitlu leyti. Þegar 6 mínútur lifðu af þeim þriðja voru þeir komnir með 6 stiga forskot og söng þá allt húsið fyrir þá (til liðsmanna/áhangenda KR gerir maður ráð fyrir) “Velkomin í Síkið”, mjög glaðlega, en hávært. Heimamenn sigruðu þennan leikhluta og fóru með 5 stiga forystu (62-57) inn í þann fjórða.
Ríkjandi deildar- og Íslandsmeistara ætti maður þó aldrei að afskrifa. Sá fjórði fór hægt af stað og munurinn hélst sá sami (svipaður / um 6 stig) allt þangað til að Helgi Magnússon ákveður að gera þetta að jöfnum leik aftur með tveimur risastórum þristum. (66-65) Stemming og sjálfstraust Tindastóls virtist samt varla finna fyrir því að jafnvel væri KR að fara af stað með mótorinn á þá. Ískaldir, mæta þeir beint yfir aftur þar sem Ingvi Rafn svarar með þrist og kemur sínum mönnum aftur í forskot, 69-65.
Það sem eftir lifði leiks héldu svipaðir hlutir svo áfram. KR reyndu hvað þeir gátu til þess að jafna og taka leikinn, en Stólar höfðu hreinlega öll svörin í kvöld. Í fjarveru stjörnuleikmans þeirra, títtnefndum Myron Dempsey, er eins og liðið hafi bara ákveðið að velja sér þá menn sem kæmu í staðinn fyrir hann og síðan staðið við það.
Leikurinn endaði með 8 stiga sigri heimamanna, 80-72.
Mikill munur á þessu Tindastóls liði og því er tapaði fyrsta leik þessarar seríu. Hvort sem það var (verður að teljast einn sá besti) þessi sterki heimavöllur sem þeir eiga í Síkinu, ónýttir hæfileikar á bekknum eða sú staðreynd að fyrir þennan leik gátu þeir stillt leik sínum upp í samræmi við missinn, skiptir kannski ekki öllu máli. Sjálfstraustið var til staðar og ef þeir ætla að eygja þess von að sigra það gífurlega sterka lið KR þá þurfa þeir að ná að flytja það með sér vestur í bæ, komandi sunnudag.
Hægt hefði verið að færa rök fyrir því að velja stuðningsmenn Tindastóls Lykilmann leiksins. En þeir sýndu af sér einhverja þá bestu frammistöðu sem undirritaður hefur orðið vitni af. Jákvæðir söngvar, hávaði, gleði og ástríða eru nokkur orð sem koma upp í hugann þegar hugsað er til baka í leik kvöldsins.
Af leikmönnum voru það hinir síungu Darrell Lewis og Flake sem áttu hvað bestan leik. Lykilmaður leikssins þó Flake með 22 stig (9/15 af vellinum) og 6 fráköst á tæpum 27 mínútum. Lewis þó ekki langt handan með 26 stig (9/18 af vellinum), 11 stig, 4 stoðsendingar og 7 stolna bolta.
Umfjöllun x Viðtöl / Davíð Eldur
Myndir / Hjalti Árna




