Þriðji leikur úrslitaeinvígis KR og Tindastóls fer fram í kvöld, í DHL höllinni kl. 19:15. Fyrir leikinn höfðu liðin skipt með sér einum sigri hvort, en til þess að sigra þarf annaðhvort liðanna að sigra þrjá leiki.
Gefur augaleið að fyrir leik eins og þann er fram fer á morgun, eru það ekki bara áhangendur beggja liða sem bíða í ofvæni, heldur einnig hinn almenni körfuboltaáhugamaður.
Við settum okkur í samband við tónlistarmanninn Helga Sæmund, sem er mikill stuðningsmaður Tindastóls og fengum að til að svara nokkrum léttum spurningum.
Hversu lengi og afhverju fórst þú að standa við bak Tindastóls í körfubolta?
Fæddur og uppalinn á Sauðárkróki svo ég hef verið Tindastólsmaður alla ævi. Verð það alla ævi.
Hverjar eru þínar fyrstu góðu minningar af því að vera stuðningsmaður Tindastóls?
Ég fór rosalega oft á leiki þegar ég bjó heima(á Króknum) og það var alltaf í góðra vina hópi. Þegar Tindastóll vann Eggjabikarinn 1999 var stemningin í kringum það gríðarleg. Allir vinirnir mættu, keyptu sér bland í poka og öskruðu Tindastóll fram á nótt. Þá var ég 12 ára.
Hvaða stuðningslag (annars liðs) þér þykir betri en hin?
Bikarinn er blár í ár eftir KáJoð er í miklu uppáhaldi. KR lagið er líka ógeðslega gott en ég er ekki að hlusta á það þessa dagana.
Hvað er langt í að Helgi Sæmundur (eða Úlfur Úlfur) hendi í óð til Tindastóls?
Það á náttúrulega að vera löngu, löngu komið og ég á ábyggilega svona 10 hálf(ó)kláruð Tindastóls lög hjá mér. Synd og skömm að það skuli ekki vera komið út áður en við vinnum titilinn í ár. Svarið mitt við þessari spurningu er ,,mjög bráðlega ÓKEI”
Hver er þinn uppáhalds leikmaður í liðinu í dag og afhverju?
Þessu er erfitt að svara. Liðið er svo falleg heild og það allra besta sem við höfum séð í mörg ár. En ef liðið væri einn líkami og allir hefðu sitt hlutverk innan hans þá held ég að Helgi Rafn myndi taka það að sér að halda hjartanu gangandi. Það væri helvítis púl en hann myndi taka það að sér fyrir alla hina.
Hver er þinn "all-time" uppáhalds leikmaður og afhverju?
Shit.
Kiddi Gun. Og Kári Mar. Hef líka alltaf haldið með Helga Frey afþví að ég er sökker fyrir fallegum þristum. Algjör Kyle Korver.
Hverju myndir þú þakka þessu góða gengi Stólana í vetur?
Það er rosalega margt að spila inn í. Gott skipulag, gífurlegt hungur, vilji og barátta, góður mórall, góð heild, geggjaðir stuðningsmenn. Síðasti vetur gaf þeim líka tækifæri til þess að slípa liðið og mynda þetta skrímsli liðið er orðið. Það kom okkur á jörðina og mótaði yngri leikmenn í átt að frekari fagmennsku.
Hverjir eru helstu styrkleikar Tindastóls?
Vörnin og baráttan eru helsti styrkleiki Tindastóls. Verst að það er það sama hjá KR. Við höfum þetta samt á baráttunni. We got this.
Hverjir eru helstu styrkleikar KR?
KR liðið er ógeðslega gott. Góð breidd og góð vörn. Helsti veikleiki þeirra er Tindastóll.
Hvernig á serían eftir að spilast út eftir þessa fyrstu tvo leiki?
Ég hef tröllatrú á okkar mönnum og ætla að spá því að við tökum þetta 3-2.
Ef vínrautt blóð rynni þér ekki í æðum, hvaða liði hefðir þú haldið með þennan veturinn og afhverju?
Ég þori varla að segja það en ef ég væri ekki Tindastólsmaður þá héldi ég líklega með KR. Ég hef alltaf verið sökker fyrir þeim. Ég held að Ríkhaður Daðason og markið hans gegn frökkum fyrir mörgum árum hafi eitthvað með það að gera þó ég sé ekki viss.
KR eru með þvílíkt flott lið en núna er komið að Tindastól að taka titilinn.
Unglingaflokkurinn vann Ísland í gær(TIL HAMINGJU!!), meistaraflokkur kvenna er að ganga heavy vel, stuðningssveitin er nú þegar orðin íslandsmeistari með Bjarna Smára og Nonna á fremstu víglínu og meistaraflokkurinn mun verða það líka.
Lítill bær fyrir norðan með besta körfuboltalið á landinu. Fokk já.




