HomeFréttirBenedikt Guðmundsson verður áfram Þórsari

Benedikt Guðmundsson verður áfram Þórsari

Þá á Akureyri en ekki í Þorlákshöfn. En Benedikt tilkynnti á facebooksíðu sinni áðan að hann hefur samið við Þór Akureyri um að þjálfa bæði karla- og kvennaflokk næstu þrjú árin.

 

 

Verður þetta í þriðja skiptið sem hann tekur að sér lið í 1.deildinni en hann hefur áður þjálfað Fjölni og Þór Þorlákshöfn í 1. deildinni.

 

Krefjandi verkefni framundan hjá honum þar sem Þór Ak. gekk ekki sem skildi í 1.deild karla í ár en þeir unnu aðeins einn leik í vetur og enduðu í neðsta sæti. Þeim til happs munu þeir þó ekki falla um deild því á næsta tímabili verða 10 lið í 1. deildinni ólíkt 8 á þessu tímabili. Ekkert lið mun því falla og tvö lið úr 2. deildinni bætast við.

 

Kvennaliðinu gekk betur en þær voru með 6 sigra í 12 leikjum og um miðja deild.

Fréttir
- Auglýsing -