Undir 18 ára lið Íslands tapaði sínum fyrsta leik fyrir Svíþjóð í þriðja leik Norðurlandamóts þessa árs í Solnahallen með 60 stigum gegn 50. Liðið er því með þrjá sigra og eitt tap það sem af er móts og leikur á morgun hreinan úrslitaleik gegn Danmörku.
Fyrsti leikhluti leiksins var líklegast eitthvað sem lið Íslands vill gleyma sem fyrst, en í honum gekk þeim alveg skelfilega að koma boltanum í körfuna. Komust ekki á blað fyrr en tæpar 4 mínútur voru liðnar af leiknum. Hlutinn endaði 5-17 fyrir Svíþjóð.
Í þeim öðrum var hinsvegar allt annað uppi á teningnum, lið Íslands, hægt og bítandi komst af stað í stigaskorun, mikið til Sylvíu Rún að þakka, og fór að taka fleiri fráköst en þær höfðu gert fyrr í leiknum. Þegar að liðin héldu til búningsherbergja í hálfleik var staðan 31-21 fyrir Svíþjóð.
Mestu munaði um framlag áðurnefndrar Sylvíu Rúnar Hálfdánardóttur, en hún skoraði 15 stig og stal 5 boltum í fyrri hálfleiknum.
Í seinni hálfleiknum héldu liðsmenn Íslands áfram að byggja ofaná þessa sterku endurkomu lok fyrri hálfleiks, og þá með sóknarframlagi frá fleirum en bara Sylvíu. Voru næstum því búnar að ná þeim, ef ekki hefði verið fyrir lokaskot leikhlutans frá Svíþjóð. Hefðu þær verið aðeins 5 stigum frá þeim, en hlutinn endaði í stöðunni 46-38 fyrir Svíþjóð.
Fyrstu 7 mínútur lokaleikhlutans voru svo að öllu leyti eign Íslands. Vel skipulögð svæðisvörn þeirra leyfði Svíþjóð aðeins 2 stig og komst Ísland yfir 46-47, í fyrsta skipti í leiknum með körfu frá Emelíu Ósk Gunnarsdóttur þegar um 6 mínútur voru eftir. Sóknarlega náði Ísland hinsvegar ekki að nýta sér þessa fínu vörn sem þær voru að spila hinumegin á vellinum. Voru að klaufast með að setja víti niður og fleira þar frameftir götunum(14/26 í leiknum).
Því fór svo að þegar um 3 mínútur voru eftir af leiknum var eins og flóðgáttir sóknar Svíþjóð opnuðust aftur og náðu þær það sem eftir lifði leiks að setja 12 stig á Ísland. Leikurinn endaði því með 10 stiga sigri Svíþjóð, 60-50.
Atkvæðamest í íslenska liðinu var Sylvía Rún Hálfdánardóttir með 17 stig, 7 stolna bolta, 4 fráköst og 2 stoðsendingar á þeim 37 mínútum sem hún spilaði í leiknum.
Næsti leikur liðsins er hreinn úrslitaleikur um titilinn gegn Danmörku á morgun, en hægt verður að fylgjast með honum inni á www.kki.is (tölfræði) og að sjálfsögðu fylgir umfjöllun eftir leik héðan af www.karfan.is.
Umfjöllun & viðtöl / Davíð Eldur
Myndir / Hörður Tulinius




