Strákarnir úr leikmannahópnum á EuroBasket í sumar svara nokkrum spurningum um undirbúninginn, upplifunina og hvað tekur við hjá þeim á nýju ári.
Nafn: Jakob Sigurðarson
Aldur: 33
Fjöldi landsleikja: 85
Félagslið: Borås Basket
Var undirbúningurinn mjög frábrugðinn því sem við myndum oftar en ekki kalla “minni” verkefni?
Æfingarnar voru svipaðar og áður. Munurinn var að við fengum fleiri æfingaleiki og gegn sterkum þjóðum. Það hjálpaði okkur mikið.
Hvernig minnist þú álagsins við undirbúning EM og meðan á því stóð?
Það sem ég man helst eftir er hversu oft ég fór í nudd hjá sjúkraþjálfurunum! Það var rosalega mikilvægt, sérstaklega fyrir okkur sem eru aðeins eldri.
Aðkoma þjóðarinnar, funduð þið fyrir áhuga almennings á verkefninu?
Já algjörlega! Þetta var mjög oft umræðuefnið þegar maður hitti fólk. Svo var stemmningin úti í Berlín það magnaðasta sem ég hef lent í með íslenska landsliðinu. Mig grunaði ekki að við myndum fá svona rosalegan stuðning og er ég mjög þakklátur fyrir það.
Hvernig var að vinna úr pressunni sem fylgdi þessu?
Það fannst mér ekki erfitt. Ég fann aldrei fyrir neinni pressu þannig. Auðvitað vill maður spila vel en fókusinn hjá mér og okkur öllum held ég var að gefa allt í mótið og njóta þess að spila á móti þessum þjóðum og leikmönnum sem maður hefur horft svo oft á spila í sjónvarpinu.
En að umgangast stórstjörnunar, hvernig var það?
Mér fannst það mjög skrýtið fyrst, sérstaklega að vera í buffet röðinni með Dirk Nowitzki eða Paul Gasol. En svo vandist það eins og annað.
Fannst þér meira stress fylgja undankepninni, og því að þurfa að tryggja sér sæti á lokamótinu, heldur en sjálfu mótinu?
Ég var ekki með í undankeppninni en ég get vel ímyndað mér það.
Hvernig ert þú að melta/meta verkefnið nú þegar nokkuð er liðið frá Berlín?
Ég brosi alltaf þegar ég hugsa um Eurobasket 🙂 Er rosalega stoltur að hafa verið partur af þessu liði.
Breytti þetta verkefni þínum framtíðarplönum í körfunni?
Nei ég get ekki sagt það. Mér finnst ég eiga 2-3 góð ár eftir og markmið mitt er að njóta þeirra og öllu sem fylgir körfuboltanum. Ég fæ að upplifa svo margt í gegnum körfuna. Ferðast mikið og kynnist nýju fólki og eftir á er það oft það sem stendur upp úr.
Hvernig var að koma aftur heim og í hið daglega líf?
Það var svakalega gott. Ég var lengi í burtu frá konunni minni og strákunum mínum. Saknaði þeirra mikið og fannst rosalega gott að komast til þeirra.
Hvað tekur við núna?
Núna er ég á fullu með Borås Basket. Við erum að spila í Fiba Europe Cup með sænsku deildinni þannig það er lítið um hvíld og mikið um leiki og ferðalög.
Stefnir þú á EuroBasket 2017?
Ég er kominn á þann aldur að ég verð bara að sjá til í hvernig ástandi líkaminn verður.




