Haukar sluppu með skrekkinn á Ásvöllum í kvöld þegar að hressar Valskonur mættu í heimsókn. Valur hafði yfirhöndina framan af leik en góður lokasprettur heimakvenna skilaði þeim sigrinum, lokatölur 73-67. Helena Sverrisdóttir var atkvæðamest í liði Hauka með 26 stig, 14 fráköst og 5 stoðsendingar.
Það var spennuslagur í boði liðanna sem sitja í 2. og 3. sæti Dominos deildar kvenna á Ásvöllum í kvöld. Valskonur sem hafa verið á góðri siglingu mættu tilbúnar í slaginn gegn heldur rólegu Haukaliði. Óhætt er að segja að flestir hafi átt von á að Haukarnir myndu taka sigurinn í kvöld en það virtist ekki í kortunum fyrr en á síðustu 5 mínútum leiksins.
Karisma Chapman fór fyrir gestunum og áttu Haukakonur erfitt með að stöðva hana. Segja mætti að Helena Sverrisdóttir hafi verið hæg í gang en það kom ekki að sökum því hún mætti tvíefld á völlinn í seinni hálfleik. Mikið mæddi á Guðbjörgu Sverrisdóttur að leiða sitt lið en hún virtist fá þungt höfuðhögg um miðjan 3. leikhluta og lá eftir á vellinum. Þetta leit virkilega illa út í fyrstu en nokkrar mínútur á bekknum gerðu greinilega sitt og Guðbjörg skellti sér aftur á gólfið.
Þegar að 5 mínútur voru eftir af 4. leikhlutanum, í stöðunni 61-65, settu Haukar allt í lás og skoruðu 10 stig í röð án þess að gestirnir kæmu sér blað. Áhugavert nokk að þetta áhlaup átti sér stað eftir að Haukar kölluðu erlenda leikmanninn sinn á bekkinn. Með því voru Haukakonur búnar að tryggja sér 6 stiga forystuna sem dugði þeim til sigurs. Lokatölur voru Haukar 73 – 67 Valur í sveiflukenndum en spennandi leik.
Liðin tvö sitja sem fastast í sínum sætum í deildinni í ljósi þess að Snæfell sigraði Grindavík og heldur því 1. sætinu. Snæfell og Haukar eru jöfn eru bæði með 30 stig en Snæfellskonur eiga innbyrðis á Haukana og tróna því á toppnum.
Haukar-Valur 73-67 (25-24, 14-17, 13-17, 21-9)
Haukar: Helena Sverrisdóttir 26/14 fráköst/5 stoðsendingar, Chelsie Alexa Schweers 14/4 fráköst/5 stoðsendingar, Auður Íris Ólafsdóttir 8/5 fráköst, Sólrún Inga Gísladóttir 6, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 6, Sylvía Rún Hálfdanardóttir 5/7 fráköst/5 varin skot, Dýrfinna Arnardóttir 3, Pálína María Gunnlaugsdóttir 3/4 fráköst, María Lind Sigurðardóttir 2, Þóra Kristín Jónsdóttir 0, Hanna Þráinsdóttir 0, Rósa Björk Pétursdóttir 0.
Valur: Karisma Chapman 26/15 fráköst, Bergþóra Holton Tómasdóttir 12/5 fráköst, Hallveig Jónsdóttir 9/7 stoðsendingar, Guðbjörg Sverrisdóttir 7/10 fráköst, Ragnheiður Benónísdóttir 6/5 fráköst, Dagbjört Samúelsdóttir 4, Margrét Ósk Einarsdóttir 3, Sóllilja Bjarnadóttir 0, Helga Þórsdóttir 0, Jónína Þórdís Karlssdóttir 0, Dagbjört Dögg Karlsdóttir 0.
Mynd: Helena Sverrisdóttir átti góðan leik fyrir Hauka. (Axel Finnur)




