HomeFréttirSnæfell kláraði Val í þriðja leikhluta

Snæfell kláraði Val í þriðja leikhluta

Snæfell sótti sterkan 19 stiga sigur á Hlíðarenda í gærkvöldi, 46-65, í annars tíðindalitlum leik þar sem vörn gestanna var í aðalhlutverki.  Snæfell leiddi svo gott sem allan leikinn en stakk svo af í þriðja leikhluta með frábærum sóknarleik og litu aldrei til baka.  Gunnhildur Gunnarsdóttir var gjörsamlega frábær í liði Snæfells og átti margar stórar körfur fyrir sitt lið.  Valskonur taka fátt jákvætt út úr þessum leik sem er eflaust þeirra slakasti í þónokkurn tíma.  

Stigahæstar í lið Snæfells var Gunnhildur Gunnarsdóttir með 19 stig en næstar voru Haiden Palmer með 17 stig og Bryndís Gunnlaugsdóttir með 8 stig. Hjá Val var Karisma Chapman sú eina sem sýndi einhver lífsmörk í sóknarleik liðsins með 21 stig en hún þurfti 25 skot til þess.  Næstar á blað voru Bergþóra Holton með 8 stig og Hallveig Jónsdóttir með 7 stig. 

 

 

Valskonur byrjuðu leikinn nokkuð betur og höfðu yfir, 5-2 þegar þrjár mínútur voru liðnar en þá voru bæði lið búin að henda nokkrum góðum tækifærum frá sér.  Gunnhildur og Bryndís svöruðu þá fyrir Snæfell með tveimur þristum í röð og snéru taflinu við, 5-8.  Ari tók þá leikhlé fyrir Valskonur þegar fyrsti leikhluti var tæplega hálfnaður. Valskonur náðu ágætis kafla i kjölfarið og voru komnar aftur yfir í stöðunni 11-10 með glæsilegum þrist frá Bergþóru.  Snæfell náði þó forskotinu aftur og héldu því i þremur stigum þangað til leikhlutanum lauk, 13-16. 

 

Snæfell mætti mun ákveðnari til annars leikluta og skoruðu fyrstu fjögur stigin, sem komu frá Haiden og Gunnhildi, áður en Valur náði að svara.  Því forskoti hélt Snæfell næstu mínútur og lítið gekk í sóknarleik beggja liða.  Þegar fjórar mínútur voru liðnar var forskot Snæfells 6 stig, 16-22.  Ingi Þór tók leikhlé fyrir gestina um mínútu seinna þegar hvorugt liðið hafði skorað í þrjár mínútur.  Valskonur höfðu þá tekið 12 sókanrfráköst gegn 15 varnarfráköstum Snæfells sem skilaði sér í 7 fleiri skottilraunum heimaliðs(34-27).  Valskonur voru þó ekki að ná að nýta sér þessar skottilraunir og voru með 17% skotnýtingu.  Karisma Chapman skoraði svo fyrstu stig leiksins í heilar fjórar mínútur af vítalínunni þegar fjórar mínútur voru eftir af fyrri hálfeik, 18-22.  Þrátt fyrir ótrúlega slaka nýtingu heimaliðsins tókst Snæfell ekki að stinga af og höfðu mest 7 stiga forskot i stöðunni 18-25. Á einhvern ótrúlegan hátt tókst Val að minnka það forskot niður í 3 stig áður en flautað var til hálfleiks en þá var staðan 24-27.  

 

Stigahæstar í liði Snæfells í hálfleik voru Gunnhildur Gunnarsdóttir með 11 stig, Haiden Palmer með 7 stig og Bryndís Gunnlaugsdóttir með 3 stig.  Hjá Val var Karisma Chapman langefst með 14 stig og 10 fráköst en næstar voru Bergþóra Holton með 4 stig og Guðbjörg Sverrisdóttir með 3 stig, 5 fráköst og 5 stoðsendingar.  

 

 Hallveig Jónsdóttir átti fyrstu stig þriðja leikhluta sem Haiden Palmer svaraði með næstu 5 stigum leiksins og stuttu seinna var forskot Snæfells aftur komið í 7 stig, 28-35.  Gunnhildur mætti með látum í seinni hálfleik og átti tvo þrista með stuttu millibili og Ari tók svo leikhlé fyrir Val í stöðunni 29-38.  Vörn snæfells var að gera Valskonum virkilega erfitt fyrir og óx forskot gestanna hratt og örugglega í þriðja leikhluta. Þegar fjórar mínútur voru eftir af honum var forskotið komið í 16 stig og stefndi hraðbyr í öruggan sigur Snæfells, 31-47.  Valskonur bættu aðeins í þegar leið á leikhlutan og höfðu náð forskotinu niður í 13 stig þegar ein mínúta var eftir af leikhlutanum.  Hugrún Eva Valdimarsdóttir átti hins vegar seinasta orðið í leikhlutanum og jók aftur forskotið fyrir gestina í 15 stig, 36-51.  

 

Fjórði leikhluti fór rólega af stað líkt og fyrstu tveir, Snæfell átti 5 fyrsti stigin áður en Guðbjörg setti annað vítið ofaní þegar þrjár og hálf mínúta var liðin af leikhlutanum, 37-56. Liðin voru komin í sama gír og í fyrri hálfleik og boltinn vildi hreinlega ekki ofaní, eftir 7 mínútur af leik höfðu liðin samanlagt sett 11 stig á töfluna og eins og gefur að skilja var fátt um fína drætti.  Valskonur voru sjáanlega búnar að gefast upp og því aðeins spurning um hversu stór sigur Snæfells yrði.  Eins og við mátti búast opnuðust þá aðeins flóðgáttirnar þegar úrslitin voru svo gott sem ráðin og liðin skiptust á að setja stig á töfluna þar til leikklukkan gall, 46-65.  

 

Umfjöllun : Gísli Ólafsson

myndir : Torfi Magnússon

Myndasafn úr leiknum má finna hér 

 

Fréttir
- Auglýsing -