Það gengur illa fyrir þá félaga Hörð Axel Vilhjálmsson og Sigurð Gunnar Þorsteinsson að hala inn sigrum fyrir lið sín á Grikklandi en engu að síður þá gengur þeim félögum persónulega vel.
Trikalla sem að Hörður Axel spilar með hefur nú tapað þremur leikjum í röð í A1 deildinni og situr í 9. sæti deildarinnar á meðan Doxa Pefkon sem að Sigurður spilar með í A2 situr í 12. sæti og hafa tapað síðustu fjórum leikjum.
Bæði liðin spiluðu um helgina, Doxa gegn Kymis sem situr í öðru sæti A2 deildarinnar en Trikalla gegn Nea Kifisia sem sitja í fimmta sæti A1 deildarinnar.
Sigurður og félagar í Doxa voru ekki langt frá því að krækja sér í sigur gegn Kymis en leikurinn endaði 75-71. Sigurður spilaði 39 mínútur í leiknum og setti niður 24 stig, tók 9 fráköst og varði 5 bolta. Eftir leikinn fjallaði Sfera Sports sérstaklega um leik okkar manns þar sem fram kom að hann hafði farið á kostum í leiknum. Virðist Sigurður vera að finna fjölina sína vel með þessu liði í Grikklandi og er oftar en ekki leiðandi leikmaður liðsins.
Hörður spilaði 30 mínútur í tapleiknum gegn Nea Kifisia en hann endaði 115-79. Hörður var með 3 stig í leiknum og 7 stoðsendingar en eins og fram hefur komið áður í spjalli við Hörð þá horfir hann mun meira á varnarleikinn sem og að finna félaga sína í sóknarleiknum.
Næstu leikir þeirra félaga eru 13. febrúar en þá mæta Trikalla risanum Aris. Fyrir þá sem ekki þekkja til Aris þá eiga þeir sennilega eina af sturluðustu stuðningsmönnum sem til eru og látum við eitt myndband fylgja með því til staðfestingar. Aris er í fjórða sæti A1 og því annað topplið sem að Trikalla mætir í næstu umferð.
Á sama tíma fá Doxa Penerythraikos í heimsókn en þeir sitja í sjöunda sæti deildarinnar. Það er ljóst að okkar menn þyrstir í sigur og bara tímaspursmál hvenær þeir setja tappa í þessa tapleikjahrinur sínar.
Stuðningsmenn Aris í essinu sínu. Sjón er sögu ríkari




