HomeFréttirHelgi Már fær vænt högg frá Anthony Gurly

Helgi Már fær vænt högg frá Anthony Gurly

Anthony Gurly, annar af tveimur erlendum leikmönnum Tindastóls, lét Helga Má Magnússon finna fyrir olnboganum á sér í leik Tindastóls og KR í Síkinu í kvöld.  Tindastóll vann leikinn með 6 stiga mun, 91-85 og því þriðji tapleikur KR á tímabilinu staðreynd.  Sigurinn gæti þó dregið dilk á eftir sér fyrir Tindastól því mjög augljóslega sést á upptöku af leiknum að þegar fimm mínútur eru eftir af leiknum gefur Anthony frá sér vænlegt olnbogaskot.  

Helgi Már er að setja skrín á Anthony sem tekur því eitthvað illa og lætur Helga finna fyrir því í kjölfarið. Samkvæmt live-stat úr leiknum er ekki dæmd villa á Anthony og hafa dómarar leiksins því ekki séð atvikið. Samkvæmt fróðum mönnum er aganefnd KKÍ heimilt að taka upp mál út frá upptöku ef ekki hefur verið dæmt á brotið í leiknum sjálfum.  Það á því eftir að koma í ljós hvort brotið af einhverjar afleiðingar í för með sér.

 Myndbandið er þess virði að kíkja á því sjón er sögu ríkari.  Fúsíjama TV hafa birt myndband af atvikinu sem má sjá hér.

 

 

**** Uppfært:  Betra sjónarhorn er að sjá hér á vefsíðu Vísis ****

 

Mynd úr safni – Davíð Eldur

frétt uppfærð kl 21:25

Fréttir
- Auglýsing -