HomeFréttirHaukar fóru létt með Grindavík á Ásvöllum

Haukar fóru létt með Grindavík á Ásvöllum

 

Heimakonur áttu ekki í miklum vandræðum með gestina úr Grindavík á Ásvöllum í kvöld. Atkvæðamest hjá Haukum var Helena Sverrisdóttir með 20 stig, 14 fráköst og 7 stoðsendingar en Sylvía Rún átti einnig góðan leik með 13 stig, 13 fráköst og 4 varin skot. Hjá Grindavík fór Whitney Frazier fyrir sínu liði með 25 stig, 19 fráköst og 32 af 50 framlagsstigum liðsins.

 

Það mætti segja að það hafi verið ljóst frá upphafi hvernig leikurinn í kvöld myndi fara. Grindvíkingar áttu erfitt með að skora en gerðu þó vel í að spila sterka vörn á Helenu Sverrisdóttur. Haukar komust í 18-8 en Grindvíkingar áttu frábæra lokamínútu í 1. leikhluta og komu stöðunni í 18-15 áður en leikhlutanum lauk. 

 

Á kafla í 2. leikhluta var ekkert skorað í rúmar 3 mínútur og ekki margt spennandi í gangi inni á vellinum. Ekki breyttist mikið fyrir 3. leikhlutann og áfram var lítið skorað á báðum endum vallarins. Það var ekki fyrr en í síðasta leikhlutanum sem stigin fóru aftur að raðast á töfluna. Haukar unnu leikhlutanum með einungis 1 stigi en þær unnu alla leikhlutana, lokatölur 70-57.

 

Haukar-Grindavík 70-57 (18-15, 15-10, 16-12, 21-20) 

Haukar: Helena Sverrisdóttir 20/14 fráköst/7 stoðendingar, Pálína María Gunnlaugsdóttir 15/6 fráköst, Sylvía Rún Hálfdanardóttir 13/13 fráköst/4 varin skot, Auður Íris Ólafsdóttir 5, Þóra Kristín Jónsdóttir 5, María Lind Sigurðardóttir 4, Sólrún Inga Gísladóttir 3, Dýrfinna Arnardóttir 2/4 fráköst, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 2, Shanna Dacanay 1, Hanna Þráinsdóttir 0, Rósa Björk Pétursdóttir 0. 

Grindavík: Whitney Michelle Frazier 25/19 fráköst, Ingunn Embla Kristínardóttir 9/11 fráköst, Petrúnella Skúladóttir 7, Ingibjörg Jakobsdóttir 6, Íris Sverrisdóttir 4, Jeanne Lois Figeroa Sicat 4, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 2, Ólöf Rún Óladóttir 0, Viktoría Líf Steinþórsdóttir 0, Björg Guðrún Einarsdóttir 0, Hrund Skúladóttir 0, Elsa Katrín Eiríksdóttir 0. 

Fréttir
- Auglýsing -