HomeFréttirKR áfram en Grindavík í sumarfrí

KR áfram en Grindavík í sumarfrí

 

KR lokaði sinni seríu gegn Grindavík í kvöld með 83-63 sigri í DHL-höllinni. Heimamenn fengu flott framlag frá mörgum en mest fór fyrir Michael Craion sem var með 21 stig, 7 fráköst, 4 stolna bolta & 2 varin skot. Pavel Ermolinski var flottur og henti í þrennu með 10 stig, 12 fráköst og 11 stoðsendingar. Grindvíkingar voru leiddir nær eingöngu af Ómari Erni Sævarssyni en hann var með 17 stig, 13 fráköst, 4 stoðsendingar og 28 af 60 framlagsstigum liðsins.

 

KR er fyrsta og eina liðið til að senda mótherja sína í fyrstu umferð úrslitakeppninnar beint í sumarfrí með því að taka seríuna gegn Grindavík 3-0. Það var ljóst strax frá byrjun hvert leikurinn stefndi en KR-ingar voru fljótir að setja tóninn. Gestirnir frá Grindavík mættu varla til leik fyrstu mínúturnar og því að elta frá upphafi. Heimamenn spiluðu sinn leik vel og þá er erfitt að eiga við meistarana á heimavelli.

 

Það var áberandi framlagsleysi í sóknarleik Grindvíkinga hjá lykilleikmönnum sem liðið treystir á að skili stórum tölum. Það kom lítið sem ekkert framlag frá Charles Garcia sem var einfaldlega lélegur í kvöld. Jón Axel Guðmundsson átti einnig erfitt með að komast á blað en hann meiddist svo á höfði í seinni hálfleik en sneri þó aftur á völlinn en þá vel skreyttur sárabindum.

 

Hjá KR voru menn vel stemmdir og hittu vel og leikgleðin virtist bara lifa hjá öðru liðinu í kvöld. Það voru 1. og 3. leikhlutarnir sem kláruðu leikinn, 2. leikhluti spilaðist nokkuð jafnt sem og loka leikhlutinn en þá voru óreyndari leikmenn komnir inn hjá báðum liðum. Jóhann Þór Ólafsson gaf þó nokkrum yngri leikmönnum séns í kvöld sem svöruðu kallinu og skiluðu flottum tölum gegn reynslunni úr Vesturbænum. 

 

KR-Grindavík 83-62 (24-12, 17-15, 23-16, 19-19) 

KR: Michael Craion 21/7 fráköst, Brynjar Þór Björnsson 17, Darri Hilmarsson 15/7 fráköst, Pavel Ermolinski 10/12 fráköst/11 stoðsendingar, Helgi Már Magnússon 5/7 fráköst, Snorri Hrafnkelsson 5, Björn Kristjánsson 5/4 fráköst/5 stoðsendingar, Þórir Gu?mundur Þorbjarnarsson 5/4 fráköst, Vilhjálmur Kári Jensson 0, Arnór Hermannsson 0, Jón Hrafn Baldvinsson 0, Ólafur Þorri Sigurjónsson 0. 

Grindavík: Ómar Örn Sævarsson 17/13 fráköst, Þorleifur Ólafsson 10/4 fráköst, Ingvi Þór Gu?mundsson 8, Hinrik Guðbjartsson 7, Jóhann Árni Ólafsson 6, Jens Valgeir Óskarsson 6, Jón Axel Guðmundsson 4/6 fráköst, Charles Wayne Garcia Jr. 4, Hilmir Kristjánsson 0, Magnús Már Ellertsson 0, Kristófer Breki Gylfason 0, Daníel Guðni Guðmundsson 0. ?

 

Fréttir
- Auglýsing -