HomeFréttirÁgúst Björgvinsson: Hugarfarið flott í dag og liðsstemningin góð

Ágúst Björgvinsson: Hugarfarið flott í dag og liðsstemningin góð

Ágúst Björgvinsson, þjálfari Vals, er reynslubolti í úrslitakeppni 1. deildarinnar og skilaði sínu liði fyrsta sigrinum í kvöld eftir æsispenandi leik gegn Skallagrím.  Liðin skiptu með sér sigrum á tímabilinu og því ljóst að þessi sería verður rosaleg.  

 

Valsmenn mættu mjög vel stemdir til leiks og höfðu náð 11 stiga forskoti eftir fyrsta leikhluta sem endist þó ekki lengur en það.  "Já, það er alveg rétt, við byrjum leikinn bara mjög vel og erum mjög vel stemmdir.  Við erum búnir að undirbúa okkur vel.  Þeir skipta yfir í svæði, eitthvað sem við vorum búnir að undirbúa okkur vel undir.  Þegar þeir skipta yfir í svæði breytist tempóið í leiknum og við erum að fá galopin skot en einhvern ekki alveg í rythma.  Og þá verðum við bara hræddir og hringurinn fer að minnka.  Og það tók okkur bara töluvert langan tíma að spila með fullu sjálfstrausti.  Og síðan breyttum við aðeins til og fórum að sækja meira á körfuna og fara fyrst inní.  Ekki vera alltaf að leita að opnu þriggja stiga skotunum". 

 

Ágúst var ánægður með hvernig liðið nýtti sér styrkleika sína í leik kvöldins og sýndi það sig í góðum liðssigri.  "Við erum með mjög góða breidd.  Jújú, við erum með hærri leikmenn þannig að þeir eru eflaust að reyna að loka á það.  Sóknarlega erum við bara mjög erfiðir við að eiga, þar sem við erum með marga sem geta skorað.  Þannig að það sýndi sig bara strax í fyrsta leikhluta að ég held að allir níu sem komu inná skori bara.  En þetta er bara einn leikur, við verðum vera gíraðir í næsta leik". 

 

Valsmenn töpuðu útileiknum gegn Skallagrím í deildarkeppninni og því ljóst að þeim bíður erfitt verkefni á föstudaginn þegar þeir mæta í Borgarnes.  "Já, við eigum eftir að vinna þar.  En það bara leggst vel í mig, ég meina það er gaman að koma þangað, það er alltaf mjög góð stemmning og ég veit það að þetta verður erfiður leikur.  Það er alltaf erfitt að mæta á útivöll í leik tvö þegar þú ert kominn með 1-0 forustu.  Þeir eiga eftir að gera allt til að klára þann leik, klára sinn heimaleik.  Það er líka bara hættulegt að hugsa of langt, þannig að við þurfum bara að einbeita okkur að þeim leik.  Mér fannst hugarfarið vera flott í dag og liðsstemningin góð.  Bara ánægður með liðið".  

 

Gísli Ólafsson

Mynd: úr safni

 

Fréttir
- Auglýsing -