spot_img
HomeFréttirEr San Antonio Spurs besta varnarlið deildarinnar?

Er San Antonio Spurs besta varnarlið deildarinnar?

 

Fyrrum NBA leikmaðurinn og núverandi sérfræðingur CBS og Bleacher Report, Greg Anthony, fer hér yfir hvaða fimm lið spili bestu vörnina í NBA deildinni. Efst á lista hjá honum er lið San Antonio Spurs, en hann telur hlutverk besta varnarmanns deildarinnar, Kawhi Leonard, vega mikið. Í annað sætið setur hann lið Atlanta Hawks þar sem að hann telur komu Dwight Howard skipta sköpum fyrir þá. Í þriðja sætinu er svo lið Los Angeles Clippers.

 

Nokkuð merkilegt er að bera þetta saman við tölfræðilega varnareinkunn liðanna, en þar er lið Atlanta Hawks í fyrsta sæti, Los Angeles Clippers í öðru og lið Utah Jazz í því þriðja. Liðið sem að toppar lista Antony, San Antonio Spurs er hinsvegar ekki nema í 14. sæti á sama lista.

 

Hér má sjá yfirferð Anthony:

Fréttir
- Auglýsing -