spot_img
HomeFréttirDraumavika Elvars batnar enn - Leikmaður ársins í SSC deildinni

Draumavika Elvars batnar enn – Leikmaður ársins í SSC deildinni

Framundan er úrslitakeppnin í bandaríska háskólaboltanum. Elvar Már Friðriksson og félagar í Barry háskólanum luku keppni í deildarkeppninni í vikunni og hefur Elvar verið að hlaða á sig verðlaunum. Í dag var hann valinn leikmaður ársins í sinni deild eða All-Sunshine State Conference (SSC) þar sem skólarnir í Flórída fylki etjast. Auk þess var hann valinn í lið tímabilsins ásamt liðsfélaga sínum. Þjálfari skólans var svo valinn þjálfari ársins í deildinni. 

 

Elvar var með 16,5 stig og 7,8 fráköst að meðaltali í leik í deildinni. Hann var valinn leikmaður vikunnar í SSC deildinni tvisvar og varnarmaður vikunnar í síðustu vikunni en sú verðlaun voru veitt í gær. Elvar er í fjórða sæti yfir stoðsendingahæstu leikmenn landssins og var valinn mikilvægasti leikmaður þakkargjörðarleiksins og bætti persónulegt er hann setti 37 stig í leik með Barry en það var einmitt í síðasta leik tímabilsins. Hann var með sex tvöfaldar tvennur og leiddi liðið. Auk þess var skoraði hann yfir 10 stig í öllum leikjum fyrir utan fjóra og fór þar af tvisvar yfir þrjátíu stiga múrinn. 

 

Frábær árangur hjá Elvari sem á eflaust eftir að sína enn meira í úrslitakeppninni og næstu árum. 

 

Fréttir
- Auglýsing -