Snæfell sigraði Val eftir framlengdan leik, með 77 stigum gegn 70, í 24. umferð Dominos deildar kvenna. Eftir leikinn er Snæfell því enn eitt á toppi deildarinnar, 2 stigum fyrir ofan Skallagrím og Keflavík á meðan að Valur er í 5. sætinu, 4 stigum frá Stjörnunni í 4.
Fyrir leik
Liðin mæst í þrjú skipti áður í deildinni í vetur. Snæfell haft í þeim tvo sigra en Valur aðeins einn. Valur í 5. sæti deildarinnar, í harðri baráttu við Stjörnuna um síðasta sætið í úrslitakeppninni, en Snæfell á toppi deildarinnar, þó aðeins 2 stigum fyrir ofan bæði Skallagrím og Keflavík.
Kjarninn
Fyrri hálfleikur leiksins var sveiflukenndur. Snæfell byrjar leikinn betur, komast í 8-15 eftir aðeins 6 mínútna leik, en Valur réttir sinn hlut fyrir lok fyrsta leikhlutans sem endar 21-21. Annar leikhlutinn var svo Vals, þær eru yfir 26-24 þegar að 5 mínútur eru eftir af hálfleiknum. Undir lok hlutans létu Valsstúlkur svo kné fylgja kviði og fóru með 5 stiga forystu, 35-30, inn til búningsherbergja í hálfleik.
Í upphafi seinni hálfleiksins héldu Valsstúlkur þessu áhlaupi sínu svo áfram. Komast mest 11 stigum yfir í 3. leikhlutanum. Fyrir lokaleikhlutann eru þær 8 stigum yfir, 55-48.
Eitthvað var farið að kræla á villuvandræðum hjá báðum liðum fyrir 4. leikhlutann. Hjá Snæfelli var Aaryn Ellenberg-Wiley komin með 4 villur, en hjá Val var Mia Loyd með 3.
Þrátt fyrir að missa Mia Loyd útaf snemma í 4. leikhlutanum gera heimastúlkur vel. Aaryn Ellenberg-Wiley var nánast óstöðvandi þessar lokamínútur. Samt ná valsstúlkur að koma sér í aðstöðu til þess að vinna leikinn undir lokin. Í stöðunni 66-66 með 5 sekúndur eftir geigar Elín Sóley Hrafnkelsdóttir á opnu sniðskoti eftir vel útfærða sókn þeirra og leiknum er í kjölfarið framlengt.
Framlengingin
Snæfell gerði það sem að Snæfell gerir í framlengingunni. Leyfðu aðeins 4 stig á 5 síðustu mínútunum. Sóknarlega svosem fínar líka, undir forystu Gunnhildar Gunnarsdóttur og Aaryn Ellenberg-Wiley setja þær 11 stig og sigla þessum leik nokkuð örugglega í höfn, 70-77.
Dómgreindarleysi
Á fyrstu tveimur mínútum 4. leikhlutans fær Mia Loyd tvær villur og útilokun frá leiknum. Fyrri villan var í leik en sú seinni var tæknivilla fyrir mótmæli. Nú vitum við ekki hvað Mia sagði eða gerði til þess að verðskulda þá villu, en útilokun hennar (var með 21 stig og 13 fráköst í leiknum) gerði hennar stúlkum virkilega erfitt á lokasprettinum.
Innkoman
Sá flotti leikmaður, Guðbjörg Sverrisdóttir, átti góða innkomu í leik kvöldsins. Eftir að hafa átt erfitt uppdráttar sökum meiðsla þetta tímabilið kom hún inn af bekknum í þessum leik með frábærum hætti. Eftir aðeins 8 mínútur spilaðar var hún komin með 5 stig, 3 fráköst, 3 stoðsendingar, 1 varið skot og 1 stolinn bolta. Um miðjan 2. leikhlutann virtist hún snúa sig og lauk þar með leik.
Tölfræðin lýgur ekki
Þriggja stiga nýting Snæfells var mun betri en hjá Val í kvöld. Settu 11 af 38 skotum sínum niður á móti aðeins 2 af 15 hjá heimastúlkum. Mestu munaði þar um stjörnuleikmann Snæfells, Aaryn Ellenberg-Wiley, en hún setti 5 af 14 skotum sínum fyrir utan þriggja stiga línuna í leiknum.
Hetjan
Tíðrædd Aaryn Ellenberg-Wiley var frábær í liði Snæfells í kvöld. Skoraði 36 stig, tók 12 fráköst, gaf 6 stoðsendingar og stal 4 boltum á þeim 42 mínútum sem hún spilaði.
Umfjöllun / Davíð Eldur
Myndir / Bára Dröfn




