spot_img
HomeFréttirSkallagrímur með flest stig deildarinnar í 10 ár í sigri á Grindavík

Skallagrímur með flest stig deildarinnar í 10 ár í sigri á Grindavík

Skallagrímur vann góðan sigur á botnliði Dominos deildar kvenna í kvöld. Skallagrímur sem mætti alveg brjálað til leiks komst í 39-12 í fyrsta leikhluta og þá strax ljóst að ekkert meira en kraftaverk þyrfti til að Grindavík gæti komið til baka. 

 

Tavelyn var með heil 21 stig strax eftir fyrsta leikhluta en hún endaði með sex þriggja stiga körfur og meirihluti þeirra strax í fyrsta leikhluta. Grindavík náði að klóra nokkuð í bakkann í öðrum leikhluta og minnka muninn örlítið en staðan að honum loknum var 61-49. 

 

Borgnesingar settu aftur í fimmta gír í þriðja leikhluta og vann hann með 22 stigum. Munurinn að honum loknum 43 stig og leikurinn svo gott sem búinn. 

 

Vörn Skallanna slakaði aðeins á í síðasta leikhluta og yngri leikmenn fengu nokkrar mínútur. Lokastaðan 119-77 Skallagrím í vil. Það eru flest stig sem lið hefur sett í efstu deild kvenna í 10 ár eða frá sigri Hauka á Breiðablik árið 2007.

 

 

Það var yfirvinna á þrennuvaktinni í kvöld. Bæði Sigrún Sjöfn og Tavelyn Tillman skiluðu þrefaldri tvennu í kvöld en þetta er önnur þrenna Sigrúnar í vetur. Tavelyn Tillman með 32 stig, 13 fráköst og 11 stoðsendingar en Sigrún með 24 stig, 11 fráköst og 10 stoðsendingar. 

 

Skallagrímur er enn í þriðja sæti deildarinnar með jafn mörg stig og Keflavík en fjórar umferðir eru eftir af deildarkeppninni. Liðin mætast einmitt eftir viku í Keflavík sem gæti reynst risastór leikur í toppbarátunni. Grindavík aftur á móti er enn í botnsætinu og þurfa að vinna alla leiki sem eftir eru til að eiga möguleika á að bjarga sæti sínu í deildinni.

 

Skallagrímur-Grindavík 119-77 (39-12, 22-28, 36-14, 22-23)

 

Skallagrímur: Tavelyn Tillman 32/13 fráköst/11 sto?sendingar, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 24/11 fráköst/10 sto?sendingar, Kristrún Sigurjónsdóttir 19/5 fráköst/5 sto?sendingar, Fanney Lind Thomas 15/5 fráköst, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 14/13 fráköst, Gunnhildur Lind Hansdóttir 8, Ragnhei?ur Benónísdóttir 7/4 fráköst, Þórunn Birta Þór?ardóttir 0, Gu?rún Ósk Ámundadóttir 0. 

Grindavík: Petrúnella Skúladóttir 25/6 fráköst, Íris Sverrisdóttir 19/7 fráköst, María Ben Erlingsdóttir 10/7 fráköst/5 sto?sendingar, Vigdís María Þórhallsdóttir 9, Ingunn Embla Kristínardóttir 6/6 sto?sendingar, Ólöf Rún Óladóttir 5, Hrund Skúladóttir 3, Angela Björg Steingrímsdóttir 0, Unnur Gu?rún Þórarinsdóttir 0, Elísabet María Magnúsdóttir 0. 

 

Tölfræði leiksins

Myndasafn 

Viðtal við Páll Axel Vilbergsson þjálfara Grindavíkur eftir leik

Viðtal við Sigrúnu Sjöfn Ámundadóttur leikmann Skallagríms eftir leik

 

Mynd / Ómar Örn Ragnarsson

Viðtöl / Snæþór Bjarki Jónsson

Fréttir
- Auglýsing -