Tuttugasta umferð Dominos deildar karla hófst í kvöld með fjórum leikjum. Í Grindavík hefndi Stjarnan fyrir bikartapið fyrr í vetur á öruggan hátt.
KR vann Keflavík í DHL höllinni en KR var yfir nánast allan leikinn en Keflavík tókst að þjarma nokkuð að íslandsmeisturunum á lokasprettinum. ÍR sótti rándýran sigur til Þorlákshafnar og komst þar með upp fyrir Þór á töflunni.
Tindastóll vann svo Skallagrím í Borgarnesi þar sem heimamenn voru með yfirhöndina framan af leik en frábær endasprettur þar sem Pétur Rúnar setti ískaldan þrist í lokin til að slökkva á Skallagrím og nánast kláraði leikinn.
Þrír leikir fóru fram í 1. deild karla þar sem Fjölnir, Breiðablik og Valur unnu góða sigra.
Staðan í Dominos deild karla eftir leiki kvöldsins
Úrslit kvöldsins:
Dominos deild karla.
KR 82-79 Keflavík
Skallagrímur 88-81 Tindastóll
Grindavík 77-96 Stjarnan
Þór Þ 71-74 ÍR
1. deild karla.
ÍA 70-98 Valur
FSu 80-90 Fjölnir
Hamar 78-100 Breiðablik




