Ragnar Gerald Albertsson leikmaður Hattar var ánægður með að vinna Ármann í hörkuleik í dag. Með sigrinum tryggði Höttur sér sigurinn í 1.deild karla og sæti í efstu deild að ári. Þetta er í annað skiptið sem Ragnar nær þessum áfanga með Hetti en hann var þó ekki með liðiinu í Dominos deildinni í fyrra og sagðist ekki vera farin að hugsa útí hvað yrði á næsta tímabili.
Viðtal við Ragnar eftir leik má finna í heild sinni hér að neðan:




