Njarðvík mætti í Íþróttahöllina í kvöld í Dominos deild karla. Áhorfendur fengu heldur skemmtun í kvöld og spennandi viðureign en gríðarleg barátta Þórsliðsins í lok leiksins skilaði sigri eftir að hafa lent undir þegar tvær mínútur voru eftir leiknum.
Fyrsti leikhluti var frekar jafn til að byrja með og leiddu Þórsarar í lok hans með fimm stigum 24-19. Í öðrum leikhluta náðu Njarðvíkingar jafna í stöðunni 30-30 en þá tóku Þórsarar við sér og fóru inn í hálfleik með 12 stiga forskot er George Beamon setti niður þriggja stiga í lok leikhlutans en George var gríðarlega öflugur í þessum leik. Staðan í hálfleik 48-36.
Njarðvíkingar komu brjálaðir inn í þriðja leikhluta og virtist ekkert ætla að ganga upp hjá Þórsurum og komust Njarðvíkingar yfir í fyrsta skipti síðan í upphafi leiksins. Þegar um 35 sekúndur voru eftir af þriðja leikhluta í stöðunni 64-63 þá gáfu dómarar tæknivillu á bekk Njarðvíkur og Þórsarar náðu fimm stiga sókn en Jón Sverrisson setti niður þrist fyrir Njarðvík í kjölfarið og Þórsarar fóru inn í fjórða leikhluta með 3 stiga forskoti.
Fjórði leikhluti var gríðarlega spennandi og gat í raun fallið á hvorn veg sem var. Njarðvíkingar komast yfir í 84-85 þegar tvær mínútur voru eftir af leiknum. Benedikt Guðmundsson þjálfari Þórs tók þá leikhlé. Er mínúta var eftir af leiknum voru Þórsarar yfir 86-85. George Beamon setti þá niður þrist við mikinn fögnuð heimamanna og allt ætlaði um koll að keyra í Höllinni. Lokastaðan 92-85 og gríðarlega mikilvægur sigur í höfn. Maður leiksins var án efa George Beamon en hann setti 33 stig í leiknum og 13 fráköst.
Stig Þórs:
George Beamon 33, Darrel Lewis 24, Tryggvi Snær, 14 Ingvi Rafn, 13, Þröstur Leó 6 og Ragnar Helgi 2
Stig Njarðvíkur:
Logi Gunnarsson 21, Myron Dempsey 18, Jóhann Árni 13, Björn Kristjánsson 13, Jón Sverrisson 8, Jeremy Atkinson 8, Snjólfur Marel 2, Vilhjálmur Theodór 2.
Umfjöllun / Jóhann Jónsson




