AE Larissa tapaði í gær gegn Doukas í grísku B-deildinni en liðin mættust í 20. umferð deildarinnar. Sigurður Gunnar Þorsteinsson var að vanda í byrjunarliði Larissa og lét mikið að sér kveða þrátt fyrir tap.
Sigurður endaði með 18 stig, 5 fráköst, 2 stolna bolta og 3 stoðsendingar auk þess að hitta úr átta af tíu skotum sínum í leiknum. Það dugði þó ekki til sigurs en Doukas vann 82-67 sigur en liðið er í þriðja sæti deildarinnar.
AE Larissa er í níunda sæti deildarinnar með 50% sigurhlutfall en liðið hefur tapað fimm af síðustu sex leikjum sínum í deildinni. Tíu leikir eru eftir í deildinni en Sigurður spilað vel á tímabilinu en hann leiðir liðið sitt í stigum og fráköstum í leik og hefur tvisvar verið valinn leikmaður umferðarinnar af Eurobasket.com.




