Skallagrímur í Borgarnesi féll í kvöld úr Dominos deild karla eftir níu stiga tap gegn Þór Þ í hörkuleik. Liðin voru ótrúlega jöfn nánast allan leikinn en Borgnesingar höfðu undirtökin allt þar til í fjórða leikhluta þar sem Þórsarar ruku frammúr með hugrekki og unnu mikilvægan sigur.
Umfjöllun um helsti þætti leiksins má finna hér að neðan:
Gangur leiksins
Liðin voru hnífjöfn í fyrsta leikhluta. Stærsti munurinn á liðunum var fjögur stig og skiptust þau á forystunni sjö sinnum í öllum leikhlutanum. Mikið af þriggja stiga skotum fengu að fjúka með fínum árangri og má segja að hátt stigaskor hafi frekar orsakast af góðum sóknarleik en lélegri vörn. Einu stigi munaði á liðunum eftir leikhlutann og allt sem stefndi í alvöru háspennuleik.
Það sama var uppi á teningnum í öðrum leikhluta en Skallagrímur var með forystuna allan leikhlutann þó munurinn væri lítill. Orkan og ákefðin í leiknum var gríðarleg og ljóst að mikið var í húfi fyrir bæði lið. Gæðin voru ansi mikil og stórskemmtilegur fyrri hálfleikur fyrir augað. Stðan eftir fyrri hálfleik var 45-43 fyrir heimamönnum og fátt sem virtist gefa slitið liðin almennilega frá hvort öðru.
Taugarnar voru enn þanndar í seinni hálfleik og varnirnar hertust all rækilega í þriðja leikhluta. Skallagrímur smellti í svæðisvörn sem Þór réð ekki neitt við. Skallagrímur náði þá 9-0 áhlaupi og náði mesta mun leiksins fyrir utan lokatölurnar. Þór gat ekki keypt sér körfu á þessu tímabili og voru Skallagrímsmenn klaufar að auka ekki muninn enn meira og gera útaf við hann í þriðja leikhluta.
Í fjórða leikhluta seig Þór svo framúr en í stöðunni 81-80 gat Skallagrímur þrisvar aukið muninn en var fyrirmunað að ná í körfu. Tveir risastórir þristar frá Emil Karel gerðu nánast útum leikinn en ótímabær skot og agaleysi var allsráðandi hjá heimamönnum. Þór hafði á endanum 86-95 sigur í Borgarnesi og sendu þar sem Skallagrím niður um deild þar sem Haukar unnu sinn leik í kvöld.
Hetjan
Tobin Carberry var gjörsamlega ævintýralega magnaður í leiknum. endaði með 38 stig, 5 stoðsendingar og 7 fráköst. Hann virtist hitta úr öllu sem hann skaut í loftið og mest af því voru með varnarmann í andlitinu. Ofan á allt tapaði maðurinn ekki bolta í öllum leiknum þrátt fyrir að vera með boltann endalaust í höndunum. Þeir Halldór Garðar og Emil Karel voru einnig mikilvægir, báðir settu þeir stórar körfur í lokin og skiluðu góðu framlagi. Einnig er vert að nefna Ólaf Helga sem gerði Flenard Whitfield svo gríðarlega erfitt fyrir með frábærum varnarleik.
Hjá Skallagrím var Sigtryggur Arnar besti leikmaðurinn. Hann hitti mjög vel og endaði með 22 stig, 10 fráköst og 6 stoðsendingar í leiknum. Flenard Whitfield var einnig drjúgur en var ekki alveg í takt við orkuna í húsinu á löngum köflum.
Kjarninn
Skallagrímur þurfti á sigri að halda í leiknum þar sem Haukar unnu Stjörnunna í kvöld. En með tapinu munar tveimur stigum á liðunum fyrir lokaumferðina og Haukar eru með sigurinn í innbyrgðisviðureign liðanna og getur Skallagrímur því ekki farið upp fyrir þá. Þetta er þriðji leikurinn í röð sem Skallagrímur glutrar frá sér á lokasprettinum og geta þeir því sjálfum sér um kennt þegar uppi er staðið. Það var nístandi sárt að horfa á agaleysi liðsins í lok leiksins þar sem liðið tók ótímabær skot og ákvarðanir liðsins voru hörmulegar trekk í trekk. Eftir situr sár raunveruleiki, Skallagrímur er fallið um deild eftir árs veru. Liðið hefur sannarlega litað deildina í vetur með stórskemmtilegri spilamennsku og eftirtektarverðum stuðningsmönnum. Félagið á heima í efstu deild miðað við þetta en taflan lýgur ekki. Margir ungir leikmenn hafa fengið eldskírn sína á tímabilinu og staðið sig með sæmd. Þetta er því engin heimsendir fyrir Skallagrím þar sem ungir leikmenn geta bætt sig í 1. deild og mun liðið eflaust mæta dýrvitlaust aftur í efstu deild áður ef langt um líður.
Þórsarar geta gengið frá þessum sigri með risa stórt bros. Það þurfti gríðarlegt hugrekki og gígantískt magn af orku til að hafa þennan. Liðið hefður ekki alveg sýnt sitt rétta andlit í síðustu leikjum og illa gengið, því gæti þessi sigur reynst mikilvægur til að ná móralnum og trúnni í liðinu aftur á réttan stað. Liðið á enn möguleika á fjórða sætinu en mæta Njarðvík í lokaumferðinni. Liðsheildin er mikil í liðinu og koma leikmenn eins og Grétar Ingi, Halldór Garðar og Davíð Arnar gríðarlega sterkir af bekknum sem reyndist gæfumunurinn í leik dagsins.
Viðtal við Finn Jónsson þjálfara Skallagríms eftir leik
Viðtal við Sigtrygg Arnar Björnsson eftir leik
Viðtal við Einar Árna Jóhannsson eftir leik
Umfjöllun og viðtöl / Ólafur Þór Jónsson
Myndir / Ómar Örn Ragnarsson




