Næst síðustu umferð Dominos deildar karla lauk í kvöld með tveimur leikjum í Reykjanesbæ. Í Keflavík voru það heimamenn sem unnu öruggan sigur á Þór Akureyri. Amin Stevens var sjóðheitur í kvöld og endaði með 33 stig og var með 70% skotnýtingu í leiknum, Keflavík á þar með enn möguleika á heimaleikjarétt í úrslitakeppninni ef liðið sigrar í lokaumferðinni en Grindavík þarf þá að tapa sínum leik.
Njarðvík vann ótrúlegan sigur í Njarðvík gegn ÍR. Spennan var gríðarleg en Njarðvík varð að vinna þennan leik þar sem tap hefði útilokað liðið frá úrslitakeppninni í ár. Logi Gunnarsson var hinsvegar ekki tilbúinn í það og skaut liðinu inní leikinn í seinni hálfleik.
LOGIIII _x1f525__x1f525__x1f525_ LIT, on fire og allt hitt #dominos365
— Anna María Ævars (@annaaevars) March 6, 2017
Einnig fóru þrír leikir fram í 1. deild karla þar sem Ármann sótti sinn fyrsta sigur í vetur gegn Vestra. Hamar er þar með öruggt í úrslitakeppnina þrátt fyrir tap gegn Fjölni.
Úrslit kvöldsins:
Dominos deild karla:
Keflavík 97-77 Þór Ak
Njarðvík 79-71 ÍR
1. deild karla
Ármann 80-77 Vestri
Breiðablik 82-74 ÍA
Fjölnir 104-91 Hamar




