spot_img
HomeFréttirBlikar í basli gegn botnliði ÍA

Blikar í basli gegn botnliði ÍA

Breiðablik vann sigur á ÍA í kvöld í Smáranum í næst síðustu umferð 1. deildar karla, 82-74, eftir að staðan hafði verið í hálfleik, 41-35, heimamönnum í vil.  Eftir sigurinn eru Blikar sem fyrr í 4. sæti deildarinnar og Skagamenn sitja í níunda og næst neðsta sætinu.

 

Leikurinn mun seint fara í sögubækur körfuboltans. Leikmenn virtust ekki vera með einbeitinguna í lagi á löngum köflum í leiknum og stundum var undirritaður ekki alveg viss hvort hann væri virkilega staddur á leik í 1. deildinni eða væri heima hjá sér að fylgjast með nautahakki þiðna. Enn og aftur! Aukinheldur minnti leikurinn á æfingaleik snemmindis í septembermánuði – maður lifandi!

 

Blikar léku óagað í sókninni og tóku alltof mörg 3ja stiga skot, næstum jafnmörg og 2ja! Þá skorti allt flæði í leik þeirra og undarlegt að sjá þá jafn slaka og raunin var. Skagamenn mega eiga það að þeir gáfust aldrei upp og náðu með mikilli seiglu að minnka muninn í þrjú stig, 72-69, þegar tæplega 5 mínútur lifðu leiks. Þá var Lalla, þjálfara Blika, nóg boðið og tók hann leikhlé. Sá eini sem virtist hlusta á hann þar var Kjartan Atli, sem kom dýrvitlaus inn eftir pásuna og vann boltann á mikilvægum augnablikum og setti líka dýrmætar körfur. Blikar snéru stöðunni úr, 72-69, í, 82-69, á rúmum tveim mínútum og innsigluðu sigurinn, 82-74.

 

Eins og áður segir vekur það furðu hve einbeitingalausir Blikar voru í kvöld þegar úrslitakeppnin er á næsta leiti.  En kannski má segja að þetta hafi verið einhver sú hriklegasta hernaðaráætlun sem um getur í hópíþrótttum í seinni tíð; vera arfaslakir korter í úrslitakeppni og syngja svo “næntís” smellinn frá Yaz and Plastic population alla vikuna – The only way is up, baby! Að mati undirritaðs er alveg morgunljóst að Blikar geta ekki spilað verr en þetta – og sem betur fer gerðist það í þessum leik en ekki í miðri úrslitakeppninni.  Jí-ha!

 

Bæði lið eiga einn leik eftir í deildinni; Skagamenn fá Fjölnispilta í heimsókn meðan Blikar sækja deildarmeistarana heim á Egilsstaði. Báðar viðureignirnar fara fram á föstudaginn.

 

Erfitt er að pikka út leikmenn sem stóðu sig vel hjá heimamönnum. Það var þá helst Kjartan Atli sem vaknaði í blálokin og barðist eins og ljón en einnig voru Atli, Birkir og Egill þokkalegir á köflum. Aðrir geta mun betur. Hjá Skagamönnum daðraði Derek Shouse við þrefalda tvennu en hann gerði 25 stig, tók 11 fráköst og gaf 9 stoðsendingar. Þá voru reynsluboltarnir Björn Steinar og Jón Orri traustir í leiknum.

 

Tölfræði leiksins

 

Umfjöllun / Gylfi Freyr Gröndal

Fréttir
- Auglýsing -