Eingöngu þrjár umferðir eru eftir í Dominos deild kvenna eftir kvöldið en heil umferð fór fram í kvöld. Grindavík vann loksins leik eftir langa eyðimerkurgöngu en í kvöld höfðu þær sigur á nágrönnum sínum í Njarðvík. Þetta var fyrsti sigur Grindavíkur síðan 3. desember.
Keflavík vann mikilvægan sigur á Skallagrím í baráttunni um annað sætið. Keflavík setti í gírinn í seinni hálfleik og hélt Skallagrím í 19 stigum í öllum seinni hálfleik. Snæfell vann öruggan sigur á Haukum sem voru án Breezy WIlliams í kvöld.
Stjarnan tryggði sér sæti í úrslitakeppninni með sigri á Valskonum í spennuleik. Stjarnan er þar með komið í úrslitakeppnina í fyrsta skipti í sögu kvennakörfubolta félagsins.
Úrslit kvöldsins:
Grindavík 73-72 Njarðvík
Haukar 60-75 Snæfell
Stjarnan 72-68 Valur
Keflavík 72-51 Skallagrímur




