Lokaumferð Dominos deildar karla fer fram í kvöld. Enn er spenna á mörgum vígstöðum og þá helst um miðja deild þar sem lið geta endað í allt frá fimmta til níunda sætis.
KR mun lyfta deildarbikarnum í kvöld hvernig sem leikur þeirra við Stjörnuna fer. Snæfell og Skallagrímur munu kveðja deildina með útileikjum í kvöld auk þess sem Haukar leika síðasta leik tímabilsins. Þar fyrir utan er ljóst að Tindastóll og Stjarnan verða í öðru og þriðja sæti deildarinnar.
Að öðru leyti er sætaskipan á reiki. ÍR getur endaði í fimmta sæti og níunda sæti, því ljóst að allt getur gerst. Fjögur af sex liðunum sem eru í 4.-9. sæti mætast innbyrgðis í kvöld og því ljóst að spennan verður gríðarleg í kvöld. Nánar verður farið í möguleika liðanna á Karfan.is síðar í dag.
Leikir dagsins:
Dominos deild karla:
ÍR-Keflavík kl 19:15 (í beinni á Stöð 2 sport 4)
Grindavík-Skallagrímur kl 19:15
Þór Þ-Njarðvík kl 19:15 (í beinni á Stöð 2 sport 2)
Þór Ak-Snæfell kl 19:15 (í beinni á Thorsport.is)
KR-Stjarnan kl 19:15 (í beinni á KR TV)
Haukar-Tindastóll kl 19:15 (í beinni á TV.Haukar.is)
Mynd / Ómar Örn Ragnarsson – Flenard Whitfield og Skallagrímur kveðja deildina í kvöld.




