ÍR sigraði Keflavík eftir framlengdan leik, 88-87, í 22. umferð Dominos deildar karla. Eftir leik er ÍR því í 7. sæti deildarkeppni þessa árs á meðan að Keflavík er sæti ofar í því 6. Það er því ljóst að ÍR mun fá Stjörnuna í fyrstu umferð úrslitakeppninnar, en Keflavík Tindastól.
Fyrir leik
Algjör úrslitastund runnin upp fyrir ÍR, sem hafði á síðustu vikum verið á mikilli siglingu. Bæði innan vallar sem utan. Þó voru þeir ekki alveg öruggir með sæti sitt fyrir leik kvöldsins. Ef að Njarðvík hefði unnið sinn leik og þeir tapað, þá hefðu þeir farið í frí. Keflavík með veika von um að ná 4. eða 5. sæti deildarinnar, en til þess þurftu Þór og Grindavík að tapa sínum leikjum.
Að sjálfsögðu, í ljósi annarra úrslita, skipti þessi leikur í kvöld svo engu máli. Það var þó ekki vitað fyrirfram og komu bæði lið alveg svakalega vel stemmd inn í leikinn.
Kjarninn
Í fyrri hálfleik leiksins skiptust liðin á snörpum áhlaupuma. Hvorugt þeirra hleypti hinu neitt svakalega langt frá sér áður en að það var aftur orðið jafnt. Eftir 1. leikhluta leiddu heimamenn, 21-19 og þegar að liðin héldu til búningsherbergja í hálfleik var staðan orðin jöfn 45-45. Atkvæðamestir í fyrri hálfleiknum voru fyrir Keflavík, Amin Stevens með 8 stig og 7 fráköst á meðan að fyrir heimamenn var það Quincy Hankins Cole með 13 stig og 9 fráköst. Það voru þó tveir ungir bakverðir sem komu með mesta kraftinn inn í leik sinna manna þessar fyrstu mínútur, annarsvegar fyrir Keflavík Daði Lár Jónsson, sem var að taka fráköst, gefa stoðsendingar og negla niður þristum og hinn bráðefnilegi Hákon Örn Hjálmarsson fyrir ÍR.
Í upphafi seinni hálfleiksins fór einhverskonar þriggja stiga keppni í gang hjá liðunum. Fyrstu 7 körfur hálfleiksins voru, sitt á hvað, úr djúpinu. Keflavík þó skrefinu á undan þangað til undir lok 3. leikhlutans, en ÍR komst aftur í forystu þegar 2 mínútur voru eftir, 65-63, með laglegri körfu frá Matthíasi Sigurðarsyni. Liðin þó jöfn að stigum fyrir lokaleikhlutann 69-69.
4. leikhluti leiksins var svo stál í stál. Jafnt var þegar að 5 mínútur voru eftir, 73-73 og enn var jafnt þegar að 2 mínútur voru eftir, 79-79. Matthías skorar þá körfu og fær villu í leiðinni. Brennir af vítinu og staðan er 81-79 þangað til að venjulegur leiktími endar. Í lokasókn Keflavíkur brýtur Quncy Hankins Cole (hans fimmta villa) á Amin Stevens á sama tíma og leiktíminn rennur út. Amin setur bæði vítin og leikurinn er framlengdur.
Framlengt
Í framlengingunni virtust bæði lið eiga erfitt með að skora. Engin karfa er skoruð fyrstu tvær mínútur framlengingarinnar. Keflavík kemst þó skrefinu á undan og er 85-87 yfir þegar um 1:30 eru eftir. Þá fær Matthías aðra villu körfu góða á sama tíma. Þá bregðst honum ekki bogalistin af gjafalínunni, kemur ÍR í forystu 88-87. Að lokum var það það sem skar úr um hvort liðið færi með sigur af hólmi í þessum klikkaða leik, því hvorugt lið nær að skora undir lokin.
Tölfræðin lýgur ekki
Í raun og verunni mátti ekki milli sjá á liðunum í kvöld. Ef eitthvað ætti þó að taka út úr tölfræði þessa leiks, þá væru það sóknarfráköstin. ÍR tók 15 slík í leiknum á móti aðeins 7 hjá Keflavík. Alltof mörg skipti sem að Keflavík var að gefa þeim til þess að taka aðra sókn á þá sem kostaði þá að lokum.
Karakter
Það var hreint ótrúlegt hvað lið ÍR sýndi mikinn krakter undir lok þessa leiks. Að missa Quincy Hankins Cole útaf með 5 villur fyrir framlenginguna, en ná samt að halda aftur af Amin Stevens í henni er alveg saga til næsta bæjar. Þar á Trausti Eiríksson mesta hrósið skilið, en svosem restin af þessu frábæra ÍR liði líka. Matthías (sjá hetjukafla) var einnig gjörsamlega frábær, allan leikinn og gerði mest þegar að það vantaði mest. Virkilega flottur sigur fyrir Breiðhyltinga sem fara á blússandi siglingu inn í úrslitakeppnina eftir þennan góða sigur.
Þvílíkur stuðningur
Þó svo að Keflavík hafi mætt með sína stuðningsmenn á leik kvöldsins (sem voru flottir) verður það að segjast að stuðningsmenn ÍR voru, enn og aftur, frábærir. Öfundsvert hlýtur að teljast fyrir önnur lið hvað þessi sveit hefur náð að búa til góða stemmingu í kringum liðið. Fyrir þá sem hafa ekki upplifað það mæli ég eindregið með að þeir taki sig til og mæti í Hellinn á annan leik ÍR og Stjörnunnar í komandi úrslitakeppni. Þetta er algjört bíó.
Hetjan
Matthías Orri Sigurðarson var stórkostlegur í kvöld. Skoraði 30 stig, tók 7 fráköst og gaf 6 stoðsendingar á þeim 39 mínútum sem hann spilaði. Sjaldan eða aldrei hefur hetjustimpillinn átt betur við neinn leikmann í neinum leik í vetur. Stýrði sínu liði eins og sannur herforingi og bjó til körfur í öllum regnbogans litum fyrir þá þegar það virkilega vantaði í kvöld.
King @matosig. #korfubolti #dominos365 pic.twitter.com/7KaSjNKaxZ
— Hörður Tulinius (@HordurTulinius) March 9, 2017
Umfjöllun, viðtöl / Davíð Eldur
Myndir / Bára Dröfn
Viðtöl:




