Albacete vann loksins leik eftir átta leikja taphrinu en síðasti sigur leikur liðsins kom 30. desember. Ragnar Nathanaelsson leikur með liðinu í spænsku C-deildinni en liðið er í næst neðsta sæti deildarinnar. Liðið vann í morgun lið Gandia sem er tveimur sætum fyrir ofan Ragnar og félaga. Lokastaða var 89-87 fyrir Albacete eftir háspennu lokamínútur þar sem íslendingurinn hávaxni reyndis hetja liðsins.
Ragnar lék 14 mínútur og var með fjögur stig og fjögur fráköst í leiknum. Auk þess átti hann stóran þátt í því að landa sigrinum er hann setti vítaskot í lok leiks til að tryggja sigur. Eftir það átti Gandia boltann með sex sekúndur eftir af klukkunni, liðið náði skoti enn Raggi Nat varði skotið og tryggði þar með endanlega sinn fyrsta sigur í búning Albacete.
Ægir Þór Steinarsson og félagar í Burgos unnu einnig mjög öruggan sigur á Palma í spænsku B-deildinni 85-66. Vegna yfirburða Burgos dreifðust mínútur liðsins jafnt á milli liðsins og því lék Ægir ekki eins mikið og vanalega. Hann var þó að sjálfsögðu í byrjunarliðinu og endaði með 9 stig og 4 stoðsendingar. Burgos er þar með aftur komið í annað sæti deildarinnar og er í harðri baráttu um að komast upp um deild.




