spot_img
HomeFréttirHeimaliðin taka forystu

Heimaliðin taka forystu

Fyrstu leikjunum í úrslitakeppninni í 1. deild karla lauk rétt í þessu með tveimur heimasigrum. Í Dalhúsum vann Fjölnir sterkan sigur á Hamri þar sem liðið leiddi mest með 25 stigum í þriðja leikhluta.

 

Valur tók á móti Breiðablik þar sem heimamenn leiddu nánast allan leikinn en Blikar sóttu heldur betur að þeim á endasprettinum.

 

Sigra þarf þrjá leiki til að komast áfram í úrslitaeinvígið en næstu leikir fara fram næstkomandi föstudagskvöld þar sem útilið kvöldins verða að heimaliðum.

 

 

Úrslit kvöldsins.

 
Fjölnir 88-76 Hamar
Valur 95-88 Breiðablik
Fréttir
- Auglýsing -