Úrsiltakeppnin í 1. Deild karla fór af stað í kvöld og tók Valur á móti Breiðablik á Hlíðarenda. Leikir liðanna hafa verið spennandi í vetur og hafa þeir allir unnist á útivelli, Valsarar með tvo sigra í Smáranum og Blikar með sigurleik í Valshöllinni. Leikurinn fór nokkuð rólega af stað og skiptust liðin á nokkurra stiga áhlaupum.
Það var svo í 2. leikhluta sem einungis heimamenn virtust hafa mætt til leiks. Valsarar settu 38 stig á töfluna á meðan Blikar skoruðu aðeins 15 stig. Stemningin var öll Valsmegin í þessum leikhluta og virtust öll stór skot detta niður á meðan lítið gekk hjá gestunum. Urald King gerði vel bæði í vörn og sókn en risa blokk frá honum í vörninni kveiktu heldur betur í hans mönnum í sókn og þá helst Austin Bracey sem hlóð í hvern þristinn á fætur öðrum. Það var ekki útlit fyrir spennandi leik að fyrri hálfleik loknum. Staðan í hálfleikshléi var 52-35 og Valsliðið hreinlega lék sér að gestunum, sem og ökklunum hjá þó nokkrum grænklæddum leikmönnum.
Breiðablik svaraði heldur betur fyrir sig í 3. Leikhlutanum en eitthvað hefur verið sagt í leikhléinu sem skilaði sér til leikmannanna. Blikar höfðu lent í smá villuvandræðum og pirringurinn sem því fylgir sást á spilinu fyrri hluta leiks. Það var hins vegar allt annar bragur á liðinu sem sigraði leikhlutann með 9 stigum og munurinn því kominn niður í 8 stig. Skotin duttu ekki eins auðveldlega hjá heimamönnum og þeir töpuðu boltanum endurtekið og menn misstu aðeins hausinn við mótlætið.
Síðasti leikhlutinn sveik engan en þar var stál í stál og Blikar áfram fastir fyrir. Gestunum tókst að koma muninum niður í 2 stig um miðjan leikhlutann. Nær komust þeir þó ekki en Valsarar héldu einbeitingunni í gegnum hvert áhlaupanna.
Tölfræði leiksins er ansi áhugaverð en jafnt var á liðunum í mörgum tölfræðiþátta. Að leik loknum munaði 7 stigum á liðunum á stigatöflunni en Valur var með 49 fleiri framlagsstig en Breiðablik. Þarna spiluðu vörðu skotin og vítanýtingin sér heldur betur fyrir heimamenn.
Næsti leikur fer fram í Smáranum á föstudaginn, 17. Mars og ekki við öðru að búast en að þar verði boðið upp á annan baráttuleik.
Umfjöllun / ELR
Myndir / Torfi Magnússon




