spot_img
HomeFréttirSnæfell fengu tvö stig í kröppum dansi

Snæfell fengu tvö stig í kröppum dansi

?Lið Stjörnunnar í Garðabæ mættu galvaskar til leiks við Snæfell í Stykkishólmi og eru liðin, ef deildin endar eins og staðan var fyrir leikinn, að fara að mætast í undanúrslitum.

 

Framvindan.

 

Stjarnan byrjaði kröftuglega og voru yfir fyrst um sinn en það var þvílík umbreyting á leiknum þegar Snæfell tóku stökk og fóru úr 7-9 í 22-9 í einni svipan og staðan eftir fyrsta hluta 24-13. Snæfell voru búnar að síga í 20 stiga mun 46-26 þegar líða tók á fyrri hálfleik og voru með leikinn í sínum höndum og ljóst að ef þessi lið mætast aftur þá er það verkefni fyrir Stjörnuna og ekki er auðveldaði það málin að Pétur Már þjálfari þeirra kallaði á dómara leiksins til þess eins að fá tæknivilluna og var glaður með. Staðan í hálfleik 50-31.

Snæfell slakaði á í þriðja leikhluta og Stjarnan nýttu sér það og sóttu á en þær höfðu fjórðungin 13-18 og staðan eftir hann 63-49. Garðabæjardömur héldu svo áfram að minnka muninn í 11 stig 67-56.

 

Hægt og bítandi voru Stjarnan að koma sér inn í leikinn en Snæfells aðal, Gunnhildur Gunnarsdóttir var komin á bekkinn með fimm villur og munaði um hana þar sem hún hafði átt mjög góðan leik og varnarleg mikilvæg. Aaryn Ellenberg var einnig komin með 5 villur þegar 2:20 voru eftir. Stjarnan var þá með mikilli baráttu að pressa hátt og berjast vel og náðu að jafna 76-76 með Rögnu Margréti fremsta en Snæfell réðu illa við hana undir körfunni. Á meðan voru Snæfell að átta sig á hvernig þær ætluðu að koma sér í sókn en leikur þeirra hrundi einhverra hluta vegna og verkefnið sem Stjarnan stóð frammi fyrir í fyrri hálfleik var að mörgu leyti að leysast í seinni hálfleik. Stjarnan sigraði fjórða fjórðung 27-16 en Snæfell kláruðu á vítalínunni og sigruðu leikinn ekki auðveldlega 79-76 en tvö dýrmæt stig í efsta sætið.

 

Þáttaskil.

Strax í fyrsta leikhluta spruttu Snæfellsstúlkur fram úr með 15-0 kafla og gerðu að virtist út um leikinn og voru við stýrið allan tíman en slepptu höndum í nokkurn tíma þar sem Stjarnan komst að og voru einkar lúmskar og þolinmóðar og þau þáttaskil hefðu getað verið það sem stóð upp úr eftir leikinn en Snæfellsstúlkur voru heppnar í lokin og þeirra þáttaskil skila sigrinum.

 

Hetjan.

Þetta er alltaf erfiður hluti í svona leik en Bryndís Guðmundsdóttir setti niður vítin í lokin spilað vel með 12 stig og 8 fráköst og fer með stærsta bitann af hetjukökunni og rjómaslettu með. Gunnhildur Gunnarsdóttir sýndi hve mikilvægur leiðtogi hún er og hvernig hún bindur liðið saman. Þegar hún fór útaf ásamt Aaryn Ellenberg sýndi það sig að leikur heimastúlkna varð óöruggari fyrir vikið sem leystu það engu að síður vel. Það var svo mál manna að ef farið hefði á hinn vegin þá átti Ragna Margrét þetta skuldlaust fyrir sitt feiknar sterka framlag sem kom Stjörnunni heldur betur inn í leikinn og voru hársbreidd frá sigri en Bryndís er vel að þessu komin í þessum leik.

 

Tölurnar.

Snæfell voru yfir á flestum sviðum en þegar þær fóru að tapa boltanum og hitta illa þá refsuðu gestirnir og settu 29 stig refsistig á Snæfell. Fráköstin voru að hjálpa Snæfelli mikið með 45 gegn 34 og fengu 17 stig útúr frákasti eftir geigað skot en á móti komu 40 stig af bekknum hjá Stjörnunni gegn 11 Snæfells. Snæfell hafði 28 stiga forystu mest sem Stjarnan saxaði niður og munaði um refsistigin og stig þeirra sem komu af bekknum þegar á reyndi.

Hjá Snæfelli var Aaryn Ellenberg með 22 stig, 10 fráköst og 7 stoðsendingar. Gunnhildur Gunnarsdóttir 17 stig. Bryndís Guðmundsdóttir 12 stig, 8 fráköst. Í liði Stjörnunnar var Ragna Margrét Brynjarsdóttir með 25 stig og 9 fráköst og erfið viðureignar. Danielle Rodriguez endaði með 17 stig, 4 fráköst, 5 stoðsendingar og 4 stolna bolta.

 

Tölfræði leiksins 

Myndasafn

 

Umfjöllun / Símon B Hjaltalín.

Myndir / Sumarliði Ásgeirsson

Fréttir
- Auglýsing -