Hrafn Kristjánsson þekkjum við flest aðeins sem þjálfara Stjörnunnar. Hrafn (sem áður hefur þjálfað á Ísafirði, í Kópavoginum, á Akureyri og í Vesturbænum) þekkja margir af verkum hans á vellinum, en fáir, ef einhverjir vita hversu víðförull Hrafn hefur verið í gegnum árin með tilliti til annarrar iðju en körfuknattleiks. Hér að neðan er smá samantekt á þeim merku stöðum og stundum sem Hrafn hefur verið beinn þáttakandi að eða viðstaddur.
Hrafn ávarpar allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna reglulega

Hrafn mætir reglulega óboðinn í beinar útsendingar BBC

Hrafn rokkaði með Slayer í kringum 1990

Það var Hrafn sem kálaði Kylo Ren

Karakter Fóstbræðra, Indriði, er lauslega byggður á persónu Hrafns

Hann og Freddie voru eins og Kobe og Shaq

Hrafn var Ali alltaf til halds og trausts

Nýtti búsáhaldabyltinguna til að berjast fyrir sínum persónulegu málum

Tekur sviðið reglulega með Metallica

Var á sínum tíma uppáhalds módel Salvador Dalí

Fagnaði vikum saman þegar seinni heimstyrjöldinni loksins lauk

Af innanbúðamönnum þekktur sem sjötta kryddið

Hrafn er hin raunverulega ástæða þess að Ísland er sjálfstætt





