spot_img
HomeFréttirDaði Lár ekki með Keflavík í kvöld

Daði Lár ekki með Keflavík í kvöld

 

Daði Lár Jónsson, leikmaður Keflavíkur, verður ekki með sínum mönnum í kvöld í 4. leik liðsins í 8 liða úrslitaeinvíginu gegn Tindastól. Daði meiddist í síðasta leik á fæti eftir að hafa orðið undir erlendum leikmanni Tindastóls, Antonio Hester. Kvaðst Daði ekki vita hversu alvarleg meiðsl hans væru, en þó vita það að hann væri ekki brotinn. Ekki var hann viss með hvenær hann yrði aftur tilbúinn til þess að spila, en það yrði þó ekki í kvöld. Ljóst að um skarð er að ræða í leikmannahóp Keflavíkur, en í 25 leikjum spiluðum fyrir Keflavík í vetur hefur Daði verið að spila að meðaltali í kringum 16 mínútur.

 

Fréttir
- Auglýsing -