Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni 1. deildar. Um eiginlegar undanúrslitaviðureignir úrslitakeppninnar er að ræða, þar sem að efsta lið deildarkeppninnar, Höttur, hefur þegar tryggt sér sæti í Dominos deildinni komandi tímabil. Fyrir leiki kvöldsins leiddi Hamar gegn Fjölni, 2-1 og Valur gegn Breiðablik, 2-1.
Í Kópavoginum sigraði Breiðablik lið Vals. Staðan því 2-2 í einvíginu, en oddaleikur mun fara fram í Valsheimilinu þann 26. næstkomandi kl. 19:30.
Í Hveragerði sigraði Fjölnir heimamenn í Hamri. Staðan því einnig 2-2 í því einvígi og mun oddaleikur fara fram þann 25. næstkomandi kl. 17:00.
Úrslit kvöldsins
Staðan jöfn 2-2 í einvíginu
Hamar 114 – 116 Fjölnir eftir tvíframlengdan leik
Staðan jöfn 2-2 í einvíginu




