Hamar og Fjölnismenn buðu uppá allt sem hægt var að bjóða i kvöld. Liðin léku fjórða leikinn í undanúrslitum um laust sæti í úrvalsdeildinni á komandi tímabili. Hamarsmenn leiddu einvígið en Fjölnismenn svöruðu í tvíframlengdum leik og því þarf oddaleik á Laugardaginn kemur.
Fyrir leik
Hamarsmenn gátu tryggt sér inn í lokaúrslitin með sigri á meðan Fjölnismenn voru með bakið upp við vegg. Svo fór sem að það voru Fjölnismenn sem unnu leikinn og tryggðu þar með oddaleik.
Hvað skóp sigurinn?
Það er erfitt að taka út eitthvað eitt atvik sem skóp sigurinn fyrir Fjölnismenn. Þeir voru með unninn leik má segja í tvígang, fyrst þegar þeir leiddu með 10 stigum og tvær mínútur eftir og síðan í framlengingunni þegar þeir leiddu með 4 stigum og 15 sek eftir. Hamarsmenn náðu að jafna í bæði skiptinn, en styrkleika merki hjá Fjölni að klára leikinn að lokum. Munurinn var kannski einna helst Róbert Sigurðsson
Hetjan
Róbert Sigurðsson fór hamförum í leiknum, ekki stýrði hann bara leik sinna manna eins og herforingi, heldur dróg hann vagninn allan leikinn. Róbert endaði á því að setja niður 43 punkta á samt því að deila boltanum átta sinnum til leikmanna sinna og uppskera stoðsendingu, að lokum bætti hann við 5 fráköstum geri aðrir betur. Chris Woods var þó hvað næst því með 44 stig og 26 fráköst, en Róbert fær vinninginn þar sem hann leiddi sitt lið til sigurs.
Stiklað á stóru
Fjölnismenn mættu gríðarlega vel stemmdir til leiks í Hveragerði í kvöld. Þeir leiddu með tíu stigum 20-30 eftir fyrstaleikhluta. Hamarsmenn neituðu þó að láta það stoppa sig og minnkuðu muninn fyrir hálfleik 45-49. Þriðji leikhlutinn var síðan aftur eign Fjölnismanna og virtist ekkert ætla að koma í veg fyrir að oddaleikur færi fram. Ótrúlegar lokamínútur Hamars náðu hinsvegar að knígja fram framlengingu, og það ekki einu sinni heldur tvisvar. Fyrst var það Chris Woods sem setti niður þriggja stiga körfu í lok fjórða leikhluta eða þegar 2 sekúndur voru eftir og jafnaði leikinn 98-98, eftir að Fjölnir leiddi með 10 stigum þegar tvær mínútur voru eftir. Í fyrri framlengingunni virtust Fjölnismenn aftur ætla fara með sigur en Chris Woods minnkaði muninn í tvö stig þegar 15 sekúndur voru eftir. Hamarsmenn stálu svo boltanum strax og skorðuð og staðan jöfn 105-105. Það voru síðan Hamarsmenn sem voru með pálman í höndunum á lokamínútum annarar framlengingar 114-112. Collin jafnaði hina vegar leikinn og svo var það vel við hæfi að maður leiksins Róbert Sigurðsson, skoraði síðustu körfu leiksin og tryggði sínu liði sigur 114-116.
Hvað næst?
Nú tekur við hreinn úrslitaleikur um hvort liðið fer í úrslita einvígið, en sá leikur fer fram á Laugardaginn í Dalhúsum. Leikur sem körfuboltaunnendur ættu ekki að láta fram hjá sér fara.
Umfjöllun / Ívar Örn Guðjónsson




