spot_img
HomeFréttirFjölnir eða Hamar í úrslitaeinvígið?

Fjölnir eða Hamar í úrslitaeinvígið?

Tveir leikir fara fram í 1. deild karla og kvenna í dag. Í 1. deild kvenna hefst úrslitaeinvígi Breiðabliks og Þór Ak með leik á Akureyri. Liðið sem vinnur einvígið tryggir sæti í úrvalsdeild að ári en fyrsta liðið til að vinna tvö leiki sigrar einvígið. 

 

Hið magnaða einvígi Fjölnis og Hamars hlýtur svo farsælan endi fyrir annað félagið í kvöld er liðin mætast í oddaleik undanúrslita 1. deildar karla. Að baki eru þrjár framlengingar og óbilandi spenna í einvíginu. Ljóst er að ekkert verður gefið eftir í leiknum og ætti engin körfuknattleiksáhugamaður að missa af. 

 

Leikir dagsins: 

 

1. deilda karla

Fjölnir – Hamar kl 17:00 (í beinni á Fjölni TV)

 

1. deild kvenna

Þór Ak – Breiðablik kl 16:30 (í beinni á thorsport.is)

Fréttir
- Auglýsing -