Leik Þórs Ak og Breiðabliks sem fara átti fram í dag á Akureyri hefur verið frestað til morguns. Ástæðan er að flug til Akureyrar í dag féll niður og er nú ljóst að ekki verður flogið í dag.
Leikurinn fer því fram á morgun kl 16:30 á Akureyri en leikurinn er fyrsti í einvígi liðanna um sæti í Dominos deild kvenna að ári. Liðin þurfa að vinna 2 leiki til að tryggja sér sætið.
Heiða Hlín og Thelma Hrund voru í viðtali hjá Þórsport fyrir leikinn sem má finna hér en ljóst er að þær þurfa að bíða aðeins lengur eftir leiknum.




