spot_img
HomeFréttirMögnuðu einvígi lauk með sigri Vals

Mögnuðu einvígi lauk með sigri Vals

Valur tryggði sér sæti í úrslitaeinvígi fyrstu deildar karla eftir sigur á Breiðablik í oddaleik liðanna í undanúrslitum. Eftir að Valur hafði leitt nánast allan leikinn knúði Breiðablik framlengingu og var spennan gríðarleg í leiknum. 

 

Gangur leiksins:

 

Valsarar mættu sterkari til leiks og náðu forystu snemma í leiknum. Munurinn í hálfleik var 10 stig 47-37 og þannig var munurinn nánast allan leikinn. Valur var sterkari á flestum stöðum vallarins og virtust blikar ekki hafa mörg svör til að ná almennilegu áhlaupi og ná yfirhöndinni. 

 

Þegar tvær mínútur voru eftir af leiknum var staðan 73-64 og leikurinn virtist svo gott sem búinn. Þrjár þriggja stiga körfur í röð frá Breiðablik kom þeim svo inní leikinn og á einu augabragði var spenna í leiknum. Með tvær sekúndur eftir af klukkunni átti Breiðablik boltann og Ragnar Jósef setti ævintýralegan þrist í spjaldið ofaní til að tryggja framlengingu á ögurstundu.

 

Framlenginguna byrjaði Breiðablik betur. Valur komst þó aftur inní leikinn og þegar 2,4 sekúndur voru eftir og staðan jöfn tók Urald King tvö vítaskot. Hann hitti úr öðru og Breiðablik tókst ekki að gera mat úr þessum tíma. Valsarar höfðu því eins stigs sigur 87-86 í þessum magnaða oddaleik. 

 

Tölfræðin lýgur ekki:

 

Breiðablik er með mun betri skotnýtingu í leiknum, þeir eru með 42% gegn 35% hjá Val. Valsarar taka hinsvegar 14 fleiri skot í leiknum. Sem orsakast eingöngu á algjörum yfirburðum Vals í sóknarfráköstum. Valur tók 23 sóknarfráköst gegn 7 hjá Breiðablik. Það er erfitt að vinna körfuboltaleiki þegar þú fær 23 sóknarfráköst á þig. 

 

Hetjan:

 

Það deila tveir leikmenn hetjustimpli dagsins. Það eru þeir Urald King og Sigurður Dagur Sturluson, Urald var með 23 stig og 19 fráköst í leiknum og þar af 8 sóknarfráköst. Sigurður Dagur var með 20 stig, 7 fráköst, 3 stoðsendingar og barðist eins og ljón allan leikinn. Orka hans smitaði út frá sér og var hann gríðarlega mikilvægur á báðum endum vallarins. 

 

Kjarninn:

 

Valur er komið í úrslitaeinvígið sem verður gegn Hamri. Undir er sæti í Dominos deild karla að ári og þarf að vinna þrjá leiki. Einvígið hefst í vikunni og miðað við báðar undanúrslitarimmurnar er von á enn meiri veislu. 

 

Yfir 800 manns voru á leik kvöldsins í Valshöllinni og ótrúleg stemmning. Á síðasta leik voru um 700 manns og er talið að um 600 manns hafi horft á útsendingu kvöldsins á netinu. Það er magnað að sjá hversu margir fylgjast með úrslitaeinvígi 1. deildarinnar sem hefur heldur betur verið launað með frábærum leikjum. 

 

Tölfræði leiksins

 

Myndasafn #1 (Davíð Eldur)

Myndasafn #2 (Torfi Magnússon)

 

Viðtöl eftir leik: 

 

Umfjöllun / Ólafur Þór Jónsson

Myndir og viðtöl / Davíð Eldur

 

Fréttir
- Auglýsing -