Lykilleikmaður 8 liða úrslitaeinvígis Keflavíkur og Tindastóls var leikmaður Keflavíkur, Magnús Már Traustason. Keflavík sigraði einvígið með þrem sigrum. Í þeim leikjum var Magnús með 20 stig og 4 fráköst að meðaltali í leik. Skotnýting hans til fyrirmyndar, setti 94% víta, 62% tveggja og 50% þriggja stiga skota sinna. Þó vissulega hafi leikmenn eins og Hörður Axel Vilhjálmsson og Amin Stevens einnig verið nauðsynlegir Keflavík til þess að komast svo vel í gegnum þetta einvígi, þá var Magnús herslumunurinn, eða leynivopnið sem reið baggamun fyrir þá í þessari seríu.
Besti leikur: Leikur 1 á Sauðárkróki. Þar skoraði Magnús 33 stig og tók 4 fráköst. Setti 5/7 þriggja stiga skotum sínum niður og öll 8 vítaskotin.
Viðtal við Magnús eftir sigur í fyrsta leik:




