Leikur Þórs og Breiðabliks í umspili um laust sæti í efstu deild sem fram fór í dag fer seint í sögubækurnar. Greina mátti á leik beggja liða allt frá fyrstu mínútur til þeirra síðustu að spennustigið hafi verið þeim um megn. Bæði lið gerðu sig sek um fjölmörg mistök á öllum sviðum körfuboltans og því verður leiksins seint minnst fyrir gæði.
Strax á upphafsmínútum leiksins gekk báðum liðum erfiðlega að skora og þegar um þrjár og hálf mínúta var liðin af fyrsta leikhluta var staðan 1-0 fyrri Þór. Og það var ekki fyrr en eftir fjögurra mínútna leik sem gestirnir skoruðu sín fyrstu stiga 3-2. Þórsarar komust svo í 7-3 en þá skoruðu gestirnir 5-0 og leiddu eftir fyrsta leikhluta 7-8.
Gestirnir byrjuðu annan leikhlutann ágætlega en þó ekki með neinum glæsibrag en skoruðu þó 5-0 fyrstu þrjár mínútur fjórðungsins.Það var ekki fyrr en um miðjan leikhlutann að Þórsstúlkur tækju við sér í stöðunni 9-14. Þór vann leikhlutann með einu stigi 13-12 og staðan í hálfleik jöfn 20-20.
Liðin skiptust á að leiða framan af þriðja leikhlutanum og þegar þrjár mínútur voru eftir að fjórðungnum leiddi Þór með þrem stigum 29-26. Það sem eftir lifði þriðja leikhluta skoraði Þór ekki eitt einasta stig gegn níu gestanna sem unnu leikhlutann 14-9 og leiddu með sex stigum 29-34 þegar fjórði og síðasti leikhlutinn hófst.
Breiðablik byrjaði 4. leikhlutann betur og náðu um tíma 8 stiga forskoti 37-29. Þórsarar náðu undir lok leiks að koma muninum niður í tvö stig en eins og svo oft í leiknum voru mistök Þórsstúlkna heldur fleiri en gestanna þrátt fyrir að hafa unnið lokakaflann með tveim stigum fögnuðu gestirnir þriggja stiga sigri 40-43.
Það verður að segjast alveg eins og það er að Þórsliðið spilaði illa í dag og flestir leikmenn liðsins að spila undir getu. Mistökin alltof mörg og því fór sem fór. Að sama skapi má segja það sama um leik gestanna en þeir bara gerðu aðeins færri mistök sem varð til þess að sigurinn féll þeirra megin.
Stigahæst í liði Þórs var Thelma Hrund Tryggvadóttir með 10 stig og 3 fráköst, Rut Herner kom næst með 9 stig og 16 fráköst, Unnur Lára 8 stig og 8 fráköst, Helga Rut 6 stig og 13 fráköst, Heiða Hlín 4 stig og 7 fráköst og Erna Rún 3 stig og 9 fráköst.
Hjá Breiðabliki var Sóllilja stigahæst með 16 stig og 10 fráköst, Auður Íris 8 stig, Ísabella Ósk 7 stig og 7 fráköst, Thelma Lind 6 stig, Eyrún Ósk 5 stig og Hafrún Erna 1 stig.
Umfjöllun og myndir / Palli Jóh – Thorsport.is




