Lykilleikmaður einvígis Stjörnunnar og ÍR í átta liða úrslitum Dominos deildar karla var valinn Justin Shouse. Shouse sem hefur verið frá vegna höfuðmeiðsla frá áramótum kom með mikinn auka kraft í lið Stjörnunnar í þessu einvígi. Auk þess að leggja gríðarlega góða tölfræði í púkk þá er hann keppnismaður mikill og smitar orku út frá sér. Hann stjórnar sóknarleik liðsins frábærlega og sýndi í einvíginu hversu mikið Stjarnan saknaði hans vikurnar á undan. Justin ætlar sér stóra hluti í ár og segja má að Stjarnan hafi minnt rækilega á sig með 3-0 sigrinum í einvíginu gegn sterku liði ÍR.
Besti leikur: Leikur 3 í Seljaskóla. Justin var með 19 stig, 5 fráköst, 2 stoðsendingar og 6 fiskaðar villur. Hann var með 75% skotnýtingu og þar af hitti hann fjórum af fimm þriggja stiga skotum sínum.
Viðtal við Justin Shouse að loknum leik 3 í einvíginu má finna hér að neðan:




