Tveir leikir fara fram í Dominos deild og 1. deild kvenna í dag. Úrslitakeppnin í Dominos deildinni hefst í kvöld með einvígi Snæfells og Stjörnunnar í Stykkishólmi.
Breiðablik getur þá tryggt sér sæti í Dominos deild kvenna að ári með sigri á Þór Ak en staðan í einvígi liðanna um laust sæti er 1-0 fyrir blika. Þór getur því með sigri tryggt hreinan úrslitaleik á Akureyri sem færi fram á föstudagskvöld.
Leikir dagsins:
Dominos deild kvenna:
Snæfell – Stjarnan kl 19:15 í beinni á Stöð 2 sport
1. deild kvenna:
Breiðablik – Þór Ak kl 19:00 í beinni á Blix TV




