Hamarsmenn slógu Fjölnismenn óvænt út í undanúrslitum fyrstu deildar og mættu í kvöld Valsmönnum í fyrsta leik úrslitanna. Hlíðarendapiltar njóta heimavallarréttar enda enduðu þeir í þriðja sæti en Hvergerðingar í því fimmta. Heyrst hefur að Hamarsmenn hafi hins vegar stærra hjarta en Valsmenn og hvort það myndi duga í Voðafón-höll heimamanna í kvöld átti eftir að koma í ljós.
Þáttaskil:
Benedikt Blöndal opnaði leikinn með flottum þristi og annar Valsþristur fylgdi í kjölfarið. Hamarsmenn spiluðu svæðisvörn allan leikinn sem býður einmitt upp á þriggja stiga skot og má segja að það hafi verið saga alls leiksins. Valsmenn nýttu hins vegar ekki næstu skot og 21-14 forysta heimamanna eftir fyrsta fjórðung í raun vel sloppið fyrir gestina.
Hamarshjartað hélt gestunum inn í leiknum frameftir öðrum leikhluta en á lokamínútum hans völtuðu Hlíðarendapiltar yfir gestina og komu sér í þægilega 51-36 forystu. Undirritaður hefur sjaldan séð jafn mörg opin þriggja stiga skot í einum leik – alltof opinn þrátt fyrir svæðisvörn – og í raun bara tímaspursmál hvenær ágætar skyttur Valsmanna myndu skjóta gestina í kaf.
Það gerðu þeir í þriðja leikhluta og formlegri dagskrá lokið um miðbik hans þegar Valsmenn skutu sig í 20 stiga forskot. Að honum loknum var staðan 79-53 og Urald King bauð upp á nokkrar troðslur og varin skot í lokaleikhlutanum til að halda áhorfendum vakandi. Lokatölur 101-73 – vægast sagt öruggur sigur Valsmanna.
Tölfræðin lýgur ekki:
Valsmenn höfðu í raun betur í flestum tölfræðiþáttum. Benda má sérstaklega á þriggja stiga skotin, Valsmenn settu 14 slík í 35 tilraunum sem gerir 40% nýtni. Sú tala hefði alveg getað verið hærri eins og greint er frá að ofan.
Bestu leikmenn:
Austin Bracey nýtti sér svæðisvörnina vel og setti 7 þrista, samanlagt 23 stig og bætti við 6 fráköstum og stoðsendingum. Urald King var einnig atkvæðamikill með 21 stig og 13 fráköst. Woods setti 24 stig og tók 11 fráköst fyrir gestina.
Kjarninn:
Valsmenn eru með úrvalsdeildarlið, sýndu það m.a. í bikarkeppninni í ár. Þeir sýndu það líka í kvöld og Hamarsmenn áttu aldrei séns. Valsvörnin var fín mestallan leikinn og þeir bjuggu til opin skot gegn svæðisvörninni ítrekað og hefðu í raun átt að bjóða upp á svolítið betri skotprósentu.
Ef eitthvað kæmi á óvart þá væri það uppgjöf Hamarsmanna. Þeir leggjast tæplega niður eftir eitt tap enda nýkomnir úr svakalegri seríu gegn Fjölni þar sem Hamarshjartað hafði betur að lokum. Þeir geta mun betur en í kvöld og munu eflaust sýna það í Frystikistunni í leik tvö.
Tölfræði leiksins
Myndasafn (Torfi Magnússon)
Viðtöl:
Umfjöllun / Kári Viðarsson
Viðtöl / Axel Örn Sæmundsson




