Í kvöld fer fram fyrsti leikur undanúrslitaeinvígis Stjörnunnar og Grindavíkur í Ásgarði í Garðabæ. Fáir, ef einhverjir, leikmenn deildarinnar þekkja parketið á þeim bænum betur en bakvörður Grindavíkur, Dagur Kár Jónsson, en hann lék með Stjörnunni upp alla yngri flokka og nokkur ár í meistaraflokk áður en að hann hélt vestur um haf í skóla. Karfan.is hafði samband við kappann og fékk aðeins að spyrja hann út í hvað honum fyndist um þetta einvígi og hvernig það væri nú að vera að fara að spila gegn uppeldisfélaginu.
Grindavík endaði í 4. sæti deildarkeppninnar og fór í gegnum erfiða seríu gegn liðinu úr 5. sæti, Þór, í 8 liða úrslitunum. Stjarnan aftur á móti endaði 2. sæti deildarinnar, aðeins einum sigurleik frá deildarmeistaratitlinum. Varðandi það hvernig honum litist á þetta einvígi fyrir sína menn sagði Dagur að það væri algjörlega undir þeim sjálfum komið hvernig þessi sería færi og að þeir hafi sýnt í vetur bæði hversu góðir, sem og hversu slæmir þeir geti verið. Þó var hann tilbúinn að taka eitthvað jákvætt út úr slíkri spilamennsku og sagði að "Stundum þarf að tapa einum og einum bardaga til þess að finna nýjar leiðir til þess að vinna allt stríðið. Þannig við vitum alveg hvað við þurfum að gera og nú er bara að framkvæma það"
Dagur hefur verið að spila glimrandi bolta í vetur og hefur honum frekar vaxið ásmegin eftir því sem liðið hefur á veturinn frekar en annað. Í heildina skilað 17 stigum, 3 fráköstum og 2 stoðsendingum að meðaltali í þeim 22 leikjum sem hann hefur verið með Grindvíkingum frá því að hann kom heim úr háskólaboltanum. Áður en að Dagur fór þangað spilaði hann með Stjörnunni og varðandi það hvort ekki væri erfitt að mæta sínum gömlu félögum sagði hann svo alls ekki vera og að hann undirbyggi sig alveg eins fyrir þetta eins og alla aðra leiki í úrslitakeppninni, enn frekar sagðist hann vera keppnismaður sem vildi bara vinna alla leiki sem hann spilaði, óháð því gegn hverjum það væri.
Nú eru margir þeirra sömu leikmanna og Dagur spilaði með hjá Stjörnunni árið 2015 enn hjá félaginu. Varðandi hvort hann hefði ekki einhverjar innherjaupplýsingar sem hann ætlaði að nýta fyrir sig og jafnvel fræða samherja sína í Grindavík um sagði hann "Það er nú eitthvað lítið sem þeir vita ekki nú þegar. Ég fer bara yfir það með þeim hvar dauðu blettirnir á parketinu í Ásgarði eru til þess að forðast þá haha.."
Sem uppalinn Garðbæing spurðum við hann svo að lokum hvort að sú staðreynd að hann væri nú að fara að spila á móti heimaliðinu skapaði ekki ákveðin vandræði fyrir fjölskyldu hans og vini. Sagði hann að fjölskyldan hans héldi alltaf með honum sama hvert hann færi, kannski fyrir utan yngsta bróðurinn sem væri ennþá í Stjörnunni, en varðandi vinina sagði hann "Vinir mínir eru flest allir Garðbæingar, þeir verða bara að eiga það við sjálfan sig með hverjum þeir halda næstu 2 vikurnar…"




