spot_img
HomeFréttirSnorri gerir ekki ráð fyrir að vera með í næsta leik

Snorri gerir ekki ráð fyrir að vera með í næsta leik

 

Framherji KR, Snorri Hrafnkelsson, gerir ekki ráð fyrir að vera með sínum mönnum í 2. leik liðsins í undanúrslitaeinvíginu gegn Keflavík komandi mánudag. Eftir að hafa verið að eiga við og verið frá vegna höfuðmeiðsla á seinni hluta tímabilsins, fékk Snorri annað slíkt um miðjan leik gærkvöldsins og lauk þar með keppni. Segist hann hafa, við það, fengið vægan heilahristing sem hann verði að jafna sig á núna. Varðandi framhaldið í þessari úrslitakeppni var hann ekki viss með og sagði að það yrði hreinlega að koma í ljós. Missir er þetta fyrir KR, Snorri verið góður í vetur, en á aðeins þessum fyrstu 4 mínútum sem hann spilaði í leik gærkvöldsins áður en að höggið kom, var hann um leið kominn með 4 stig og frákast.

 

KR ætti þó ekki að örvænta, en eins og greint hefur verið frá mun KR vera að fá annan færan framherja að nafni Kristófer Acox í lið sitt fyrir þennan næsta leik.

Fréttir
- Auglýsing -