Þrír leikir fóru fram í A riðli lokamóts EuroBasket. Þeim fyrsta tapaði Ísland fyrir Slóveníu með 75 stigum gegn 102. Í öðrum leik dagsins sigraði Frakkland lið Póllands í spennandi leik, 78-75. Atkvæðamestur fyrir Frakkland í þeim leik var Thomas Heurtel með 23 stig, 4 fráköst, 6 stoðsendingar og 3 stolna bolta á meðan að Aaron Cel dróg vagninn fyrir Pólland með 14 stigum, 2 fráköstum, 2 stoðsendingum og 2 stolnum boltum. Það helsta úr leiknum má sjá hér fyrir neðan.
Svo í síðasta leik dagsins sigruðu heimamenn í Finnlandi sterkt lið Grikklands, 89-77. Atkæðamestur fyrir Finnland í leiknum var Petteri Koponen með 24 stig, 2 fráköst, 6 stoðsendingar og 1 stolinn bolta. Fyrir Grikkland var það Thanasis Antetokounpo með 17 stig, 3 fráköst, stolinn bolta og varið skot. Helstu atvik leiksins má sjá hér fyrir neðan.
Nokkuð spennandi lokadagur riðlakeppni sem fram fer á morgun. Þar sem að Slóvenía, Frakkland og Finnland eru örugg áfram, en Grikkland og Pólland mætast í úrslitaleik um hvort liðið nær fjórða og síðasta farmiðanum áfram til Tyrklands.




