FIBA valdi í dag í úrvalslið sitt frá 16 liða úrslitum EuroBasket 2017. Eins og komið hefur fram komust Ítalía, Þýskaland, Slóvenía, Grikkland, Lettland, Spánn, Rússland og Serbía áfram, en 8 liða úrslitin fara fram á þriðjudaginn og miðvikudaginn.
Í úrvalsliðinu eru þjóðverjinn Dennis Schroder og slóveninn Anthony Randolph frá leikjum laugardagsins. Frá leikjunum sem voru í gær þeir Janis Timma fyrir Lettland, Ognjen Kuzmic fyrir Serbíu og Alexey Shved fyrir Rússland, en hann var einnig valinn besti leikmaður 16 liða úrslitanna.
Shved frábær í 16 liða úrslitunum. Skoraði 27 stig, tók 4 fráköst og gaf 12 stoðsendingar í nokkuð óvæntum sigri sinna manna á Króatíu.
Mynd / FIBA
#EuroBasket2017 Round of 16 Top Performers: @DennisMike93, @Shved23, @JTii6, @TheARandolph and @ognjenkuzmic1.
_x1f4d6_ https://t.co/e4ZiKhtqsz pic.twitter.com/S17XjTlzjI
— FIBA (@FIBA) September 11, 2017




