Dominos deildarlið Njarðvíkur hefur samið við Eriku Williams fyrir komandi leiktíð. Erika er bakvörður/framherji frá CSU Bakersfield háskólanum í Bandaríkjunum. Þar skilaði hún 12 stigum og 5 fráköstum að meðaltali í leik.
Samkvæmt þjálfara liðsins, Hallgrími Brynjólfssyni, er Erika leikmaður sem getur leikið nokkrar stöður á vellinum og að hún sé mikil íþróttakona. Bindur hann vonir um að hún geti hjálpað annars ungu liði Njarðvíkur að vaxa og dafna enn frekar.
Brot frá síðasta tímabili hennar:




